Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
15.08.2015 10:34Nes fer að byrja á ný eftir sumarfríVonandi hafa allir haft það gott í sumarfríinu en núna styttist í að æfingar hefjist á ný hjá Nes. Æfingar byrja miðvikudaginn 26 ágúst með bocciæfingu og svo allar æfingar samkvæmt dagskrá eftir það. Kynningarfundur á starfsemi Nes næsta starfsár verður haldin mánudaginn 24 ágúst og verður auglýstur fljótlega. Skrifað af Stjórn Nes 05.06.2015 19:28Vinningar í Sumarhappdrætti NES 2015Vinningsnúmer eru birt hér fyrir aftan og óskar Nes öllum vinningshöfum til hamingju með vinningana. Vinninga er hægt að nálgast næsta mánudag, þriðjudag og fimmtudag kl:18.30 til 20.00 í Vatnaveröld (8, 9 og 11 júní). Einnig er hægt að hafa samband í síma 859-8510 og er vinningshafi að fyrsta vinning beðin um að hafa samband í síma. Nes þakkar öllum sem keyptu miða fyrir stuðninginn sem og öllum fyrirtækjum sem gáfu vinninga. Takk takk fyrir okkur, alveg ómetanlegt að fá svona stuðning við starfið. Til hamingju enn og aftur vinningshafar.
Skrifað af Stjórn Nes 23.04.2015 11:36Vorhappdrætti Nes- skráning sölufólksSæl veriði kæru iðkendur og aðstandendur í Nes ...nú fer að líða að sala á happdrættismiðum í Vorhappdrætti Nes fer að byrja ...við þurfum að vita frá ykkur hverjir ætla að vera með í því að ganga í götur og selja miða. Þess ber að geta að iðkendur fá hluta af ágóða sölu hvers miða til sín, sem fer beint inná styrktarsjóð þeirra hjá Nes. Vinsamlegast skráið ykkur hérna á síðuna ef þið viljið vera með og ef þið hafið einhverjar óskir um hvaða götur þið viljið fara í ....við munum svo reyna að skipta þessu bróðurlega á milli allra sem vilja taka þátt. Skrifað af Stjórn Nes 23.04.2015 11:35Gleðilegt sumarGleðilegt sumar kæru iðkendur, þjálfarar, aðstandendur, stjórnarmeðlimir og allir velunnarar Nes ...minnum á að allar æfingar í dag falla niður vegna Sumardagsins fyrsta. Njótið sólarinnar og gleðinnar sem henni fylgir. Skrifað af Stjórn Nes 30.03.2015 14:17Tímasetningar Íslandsmótsins og lokahófið í Gullhömrum
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í boccia, borðtennis, frjálsum íþróttum og lyftingum fer fram helgina 10.-12. apríl næstkomandi. Keppni í boccia, frjálsum og lyftingum fer fram í Kaplakrika í Hafnarfirði en keppni í borðtennis fer fram í Íþróttahúsi ÍFR að Hátúni í Reykjavík. Lokahóf Íslandsmótsins fer svo fram í Gullhömrum í Grafarvogi þar sem húsið verður opnað kl. 18:00 sunnudagskvöldið 12. apríl.
Tímaseðill Íslandsmótsins
Föstudagur 10. apríl Frjálsar íþróttir – Kaplakriki – upphitun kl. 18 og keppni kl. 19
Laugardagur 11. apríl Boccia – Kaplakriki – 9.30 fararstjórafundur – 10:30 mótssetning – 11:00 keppni hefst Lyftingar – Kaplakriki – 11:00 vigtun – 13:00 keppni hefst Borðtennis – Íþróttahús ÍFR – keppni hefst kl. 11:00
Sunnudagur 12. apríl Boccia 11:00-15:00 Lokahóf ÍF í Gullhömrum í Grafarvogi – húsið verður opnað kl. 11:00.
Lokahófið 12. apríl Eins og áður segir verður húsið opnað kl. 18:00 og borðhald hefst kl. 19. Verð á mann er kr. 7000. Veislustjórar verða þeir Ingvar Valgeirsson og Hlynur Ben.
Matseðill
Forréttur Asparssúpa með nýbökuðu brauði
Aðalréttur Hægeldað nautafillet með kartöflubátum,grænmeti og rjómalagaðri piparsósu.
Eftirréttur Sukkulaðifrauð með ferskum berjum og vanillurjóma.
Kveðja/ Regards Jón Björn Ólafsson Þjónustu- og íþróttafulltrúi ÍF Sports Director NPC Iceland/ SO Iceland 24.03.2015 14:13
23.03.2015 10:29
23.03.2015 10:23Páskafrí Nes
Boccia fer í páskafrí frá 25. mars. til 8. apríl.... Kveðja 22.03.2015 22:09Aðalfundur
Íþróttafélagsins Nes 30. mars 2015, Verður í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ, Sólvallagötu 6, kl. 20:00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
Stjórn Nes 13.03.2015 13:24Áríðandi skilaboð vegna Íslandsmóts ÍF í sundi
Kæru forráðamenn og þjálfarar,
Vegna Íslandsmóts ÍF í sundi sem fram fer í Laugardalslaug n.k. laugardag og sunnudag biðjum við fólk vinsamlegast að fylgjanst grannt með verðurspá og ekki taka áhættu í ferðum milli staða. Varðandi laugardaginn þar sem upphitun hefst 13:00 og mótseting 14:00 mælum við með að fólk að leggji snemma af stað þar sem samkvæmt nýjustu spám er alls ekkert ferðaveður um hádegisbilið.
Því miður er ekki hægt að fresta mótinu sem er með IPC gildingu sem sækja þarf um a.m.k. sex vikum fyrir mót til að það teljist löglegt.
Að lokum hvetjum við ykkur enn og aftur til að fylgjast gaumgæfilega með veðurfréttum og ekki halda af stað fyrr en að vel athuguðu máli. Sé frekari upplýsinga óskað þá vinsamlegast hafið samband við starfsmenn ÍF í símum 8962115 Ólafur, 8975523 Anna Karólína og 8681061 Jón Björn.
Kveðja/ Regards Jón Björn Ólafsson Þjónustu- og íþróttafulltrúi ÍF Sports Director NPC Iceland/ SO Iceland 13.03.2015 06:14Sniglarnir styrkja Nes Flettingar í dag: 1427 Gestir í dag: 194 Flettingar í gær: 428 Gestir í gær: 78 Samtals flettingar: 212207 Samtals gestir: 29239 Tölur uppfærðar: 26.11.2024 12:22:52 |
Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Nafn: Íþróttafélagið NESTölvupóstfang: nes.stjorn@gmail.comAfmælisdagur: 17 nóvember 1991Staðsetning: Suðurnes, ÍslandÖnnur vefsíða: https://www.facebook.com/ibrottafelagid.nes.1Um: Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðningTenglar
Eldra efni
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is