Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum

Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes

Færslur: 2012 Maí

29.05.2012 22:21

Frjálsar og Boccia komin í SUMARFRÍ

NES-arar athugið!!!  Frjálsar (yngri og eldri) og Boccia (yngri,miðhópur og eldri) eru komin í SUMARFRÍ...engar æfingar í frjálsum eða boccia fyrr en í ágúst (nánar auglýst þá). Hafið það rosa gott í sumar kæra fólk og sjáumst í lokahófinu. Kveðja Þorgerður, Arna og Petra

Ath. Sundæfingar halda áfram sem og fótboltinn !!!

26.05.2012 21:19

TIlkynning til sundhópsins!!

Vegna sumarleyfis starfsmanna í íþróttahúsum Akurskóla og Heiðarskóla verða sundæfingar í næstu viku þessar:

Mánudagur:

Sundæfing hjá ELDRI kl.16.00-17.00 í Vatnaveröld (athugið vel tímasetningu, þessi tímasetning er sökum þess að það er annar í hvítasunnu og sundlauginni lokar kl.18.00).

Þriðjudagur::

Sundæfing hjá YNGRI í sundlaug Heiðarskóla kl.17.15-18.15

GARPASUND í sundlaug í Heiðarskóla kl.18.15-19.15

Fimmtudagur:

SAMEIGINLEG sundæfing hjá YNGRI og ELDRI í sundlaug AKURSKÓLA kl.18.30-19.30

Sjáumst sem flest

kv. Ingi Þjálfari

22.05.2012 19:35

AÐALFUNDUR og LOKAHÓF 11.júní kl.18.00

Aðalfundur NES verður haldinn þann 11.júní næstkomandi kl.18.00 í sal Akurskóla, Reykjanesbæ. Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf þ.e. farið verður yfir ársskýrslu og ársreikning félagsins, kosning stjórnar og önnur mál....
....þegar aðalfundi lýkur verður blásið til veislu og LOKAHÓF NES hefst með pomp og prakt. Á lokahófinu mun gleðin ráða ríkjum, þjálfarar munu veita verðlaun og mun félagið gefa öllum gott að borða. Þegar lokahófinu lýkur mun NES fara í formlegt sumarfrí fram til miðjan ágúst, fyrir utan fótboltann (Stefán þjálfari fótboltans útskýrir það frekar á lokahófinu).

NES hvetur alla iðkendur, aðstandendur og alla velunnara NES að mæta á AÐALFUND og LOKAHÓFIÐ ...verið dugleg að láta þetta berast flotta fólk !!!!

Sjáumst þann 11.júní kl.18.00 í Akurskóla og höfum gaman saman

kveðja

Stjórnin

19.05.2012 19:23

Flott vormót hjá Öspinni og Kiwanisfélaginu Elliða

Frábær dagur að baki í Laugardalslauginni hjá sundhópnum í NES á vormóti hjá Öspinni og Kiwanisfélaginu Elliða. NES-arar stóðu sig með stakri prýði, allir voru að bæta sinn tíma og margar voru medalíurnar. Frábær frammistaða, góð stemmning og margir aðstandendur að horfa á, æðislegt. Takk fyrir frábæran dag flotta fólk og til hamingju NES-arar :)

17.05.2012 14:34

Asparmót í sundi næstkomandi laugardag 19.maí

Næstkomandi laugardag 19.maí í Laugardalslauginni verður haldið Asparmót í sundi. Upphitun hefst kl.11.00 og hefst mótið kl.12.00.  Stór hluti af sunddeild NES mun keppa á þessu móti. Gangi ykkur rosa vel kæru NES-arar. ÁFRAM NES

Ath. Keppendur eru beðnir að vera mættir í Laugardalslaug kl.11.00 um leið og upphitun hefst.



17.05.2012 14:12

Norðurlandamót og Íslandsleikar Special Olympics í Knattspyrnu

Norðurlandamótið Í BOCCIA síðustu helgi gekk glimrandi vel sem og Íslandsleikarnir Special Olympics í knattspyrnu sem er nýafstaðnir en þeir voru haldnir í dag 17.maí kl.10-13.00, á Víkingsvelli. Þar mættu NES-arar galvaskir til leiks og voru félaginu til mikins sóma. Til lukku með þetta flotta fólk. Myndir af þessum atburðum koma á síðuna á næstunni.

07.05.2012 20:38

Í NES er nóg um að vera ....

Jæja sæl veriði kæru NES-arar og vinir

Eitthvað höfum við verið löt að setja inn fréttir hingað á þetta blogg okkar, afsakið það!! Við erum mun DUGLEGRI að setja inn fréttir á facebook, svo vonandi hefur þetta ekki haft nein svakaleg áhrif.
En síðan síðast, var bloggað hér, hefur NES unnið frækna sigra á mótum sbr. gull og silfur á Hængsmóti á Akureyri og lenti einnig í 3. sæti í sveitakeppni á sama móti. Til lukku með þetta flotta fólk! 
Til viðbótar við þetta hafa NES-arar verið duglegir að mæta á æfingar síðastliðnar vikur í öllum flokkum og eru stöðugt að bæta sig sem er alveg FRÁBÆRT.  Framundan er nóg um að vera í mótum hjá NES-urum sbr. næstkomandi helgi 11-13.maí verður Norðurlandamótið í Boccia í Laugardalshöllinni, þann 17.maí á Víkingsvelli verða Íslandsleikarnir fyrir knattspyrnu í samstarfi við Special Olympics á Íslandi, KSÍ og knattspyrnufélagið Víking og þann 19.maí verður sundmót Asparinnar sem verður haldið í Laugardalslauginni.  Við óskum NES-urum góðs gengis á þessum komandi mótum og lofum að standa okkur betur í því að uppfæra hér á þessari síðu.

Þangað til næst ......ÁFRAM NES :)

  • 1
Flettingar í dag: 126
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 123
Gestir í gær: 46
Samtals flettingar: 186581
Samtals gestir: 22326
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 11:42:27

Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum

Nafn:

Íþróttafélagið NES

Afmælisdagur:

17 nóvember 1991

Staðsetning:

Suðurnes, Ísland

Um:

Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðning

Tenglar