Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum

Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes

29.12.2022 21:15

Íþróttafólk Reykjanesbæjar

Íþróttafólk Reykjanesbæjar verður útnefnt í hófi sem fram fer í
Íþróttamiðstöðinni í Njarðvík, Norðurstíg 4, þann 31.des n.k kl 13:00

 

17.10.2022 20:58

Úrslit á Íslandsmóti ÍF í boccia haldið í Reykjanesbæ 15. og 16. október 2022

Íslandsmót ÍF í boccia og borðtennis sem fram fór í Reykjanesbæ um helgina  er lokið og var helgin ótrúlega vel heppnuð.  Við í Íþróttafélaginu Nes ásamt Borðtennisfélagi Reykjanesbæjar  héldum utan um umgjörð mótsins og göngum glöð í burtu frá vel heppnuðu móti.

Hér fyrir neðan má sjá úrslitin í einliðaleiknum í boccia.

Úrslit á Íslandsmóti ÍF í boccia haldið í Reykjanesbæ 15. og 16. október 2022                                

1.  Deild

1. sæti: Jósef W Daníelsson, Nes
2. sæti: Vilhjálmur Þór Jónsson, Nes
3. Sæti: Kolbeinn Skagfjörð, Akri

2.  Deild

1. sæti: Helga Helgadóttir, Eik
2. sæti: Stefán Róbertsson, Ægi
3. Sæti: Jóhanna N. Karlsdóttir,Þjóti

3.  Deild

1. sæti: Aron Fannar, Völsungi
2. sæti: Þórarinn Ágúst Jónsson, Ægi
3. Sæti: Júlíana Silfá Haraldsdóttir, Ægi

4.  Deild

1. sæti: Ragnar Björnsson, Firði
2. sæti: Sandra Rós Margeirsdóttir, Nes
3. Sæti: Benedikt Ingvarsson, Ösp

5.  Deild

1. sæti: Ólafur Andri Hrafnsson, Akri
2. sæti: Konráð Ólafur Eysteinsson, Nes
3. Sæti: Björn Harðarson, ÍFR

6.  Deild

1. sæti: Grétar Ingi Helgason, Ægir
2. sæti: Guðrún Ósk Jónsdóttir, Ösp
3. Sæti: Ólafur Hauksson, Gný

Rennuflokkur

1. sæti: Árni Sævar Gylfason, Ösp
2. sæti: Kristján Vignir Hjálmarsson, Ösp
3. Sæti: Þórey Rut Jóhannesdóttir, Ösp

BC 1 til 5

1. sæti: Ingi Björn Þorsteinsson, ÍFR
2. sæti: Aneta Kaczmarek, ÍFR
3. Sæti: Hjörleifur Smári Ólafsson, ÍFR

 

27.08.2022 11:01

 

 

Æfingatafla Íþróttafélagsins Nes fyrir veturinn 2022 -2023. Æfingar í sundi yngri, sundi eldri og frjálsum yngri eru enn í bið vegna þjálfaraleysi. Tilkynning verður send út um leið og þær æfingar hefjast.

Boccia æfingar hefjast 31.ágúst og Garpasund í viku 2 í september.

Nú hafa þær breytingar verið gerðar á gjöldum okkar að einungis þarf að greiða eitt gjald en getur æft aðrar greinar innan Nes sem hæfir aldri.

Skrá þarf sig á Sportabler og er hér hlekkur á það https://www.sportabler.com/shop/nes

19.06.2022 15:09

Lokahóf Íþróttafélagsins Nes

Lokahóf Íþróttafélagsins Nes

Í ár ákváðum við að hafa lokahófið með öðru sniði en undanfarin ár eða klippa í sundur viðburð aðalfundar og lokahófs í sundur með það fyrir augum að gefa iðkendum viðurkenningarstund sína sem sérviðburð. Viðburðurinn heppnaðist með eindæmum vel þar sem viðurkenningar fyrir liðið íþróttaár voru veittar og pylsuveisla í lokin.

Veitt voru verðlaun fyrir bestu mætinguna, jákvæðasta félagann og mestu framförina í hverjum flokk ásamt hvataverðlaunabikarnum en einnig fengum við þá ánægju að afhenda bikara ÍRB fyrir íþróttamann og íþróttakonu ársins sem hafði ekki náðst að afhenda vegna fjöldatakmarkanna covid-19.

En íþróttamaður ársins var Ástvaldur Ragnar Bjarnason og íþróttakona ársins var Bryndís Brynjólfsdóttir – hamingjuóskir frá Íþróttafélaginu Nes.

Sund yngri:

Besta mæting Mikael Már Einarsson

Mesta framför Hannes Daníel Þorbjörnsson

Jákvæðasti félaginn Adríana Bjarkey Ragnarsdóttir

Sund eldri:

Mesta framför Adam Xavier Nelson

Jákvæðasti félaginn Heiðrún Eva Gunnarsdóttir

Besta mætingin Heiðrún Eva Gunnarsdóttir

Frjálsar yngri:

Mesta framför Hannes Daníel Þorbjörnsson

Jákvæðasti félaginn Særún Birgisdóttir

Besta mætingin Ísey

Frjálsar eldri:

Mesta framför Stefanía Guðnadóttir

Jákvæðasti félaginn Adam Xavier Nelson

Besta mætingin Ari Ægisson

Boccia:

Boccia konan Ína Owen Valsdóttir

Boccia maður Ástvaldur Ragnar Bjarnason

Besta hjálparhellan Heiðrún Eva Gunnarsdóttir

Aðstoðarþjálfarar Bryndís Brynjólfsdóttir og Jósef W. Daníelsson

Mesta framför Arngrímur Arnarsson, Ásmundur Þórhallsson og Árni Þór Rafnsson

Besta mætingin Bryndís Brynjólfsdóttir, Guðný Óskarsdóttir og Berglind Daníelsdóttir

Garpasund

Jákvæðasti félaginn Daði Þór Pálsson 

Besta mætingin Erla Sif Kristinsdóttir

Mesta framförin Guðný Óskarsdóttir og Erla Sif Kristinsdóttir

 

Jákvæðasti Nesarinn Guðni Steinlaugsson

Besti félaginn Kristrún Bogadóttir

 

Hvatabikarinn er farandsbikar til eins árs og hlaut Berglind Daníelsdóttir þau verðlaun í ár.

 

Íþróttafélagið Nes óskar ykkur öllum til hamingju með þær viðurkenningar sem þið hlutuð fyrir ykkar þrautseigju og iðkun við ykkar íþrótt hjá félaginu.

Allar myndir eru birtar með leyfi þeirra sem sóttu viðburðinn og er hægt að skoða í myndalbúmi merkt viðburðinum

 

 

 

 
 
 
 
 
 

16.06.2022 15:11

Íslandsmót ÍF og Hængsmót í sveitakeppni í boccia

Íslandsmót ÍF og Hængsmót í sveitakeppni í boccia Akureyri dagana 28 apríl til 1.maí

 

 

Íslandsmót ÍF og Hængsmót var haldið á Akureyri dagana 28 apríl til 1 maí og fór fríður hópur frá Nes og keppti. Frá Nes fóru 8 lið, helgin var frábær í alla staði og heppnaðist vel í alla staði, iðkendur voru dugleg og voru Íþróttafélaginu Nes til mikillar fyrirmyndar. Gaman er að segja frá að 4 lið frá Nes lentu á verðlaunapalli.

 

Íslandsmót ÍF og Hængsmót í sveitakeppni í boccia 2022
(Akureyri 29. og 30. apríl 2022)
Úrslit 1. deild

1. sæti: Eik A: Baldvin Steinn Torfason, Helga Helgadóttir og Stefán Thorarensen.
2. sæti: Nes B: Ari Ægisson, Konráð Ólafur Eysteinsson og Vilhjálmur Þór Jónsson.
3. sæti: Nes D: Ína Owen Valsdóttir, Sóley Svanfríður Valsdóttir og Sandra Rós Margeirsdóttir.
Úrslit 2. deild
1. sæti: Akur C: Arnþór Ólafsson, Heiðar Hjalti Bergsson og Bjarni Þór Bjarnason.
2. sæti: Nes G: Ívar Gunnrúnarson, Unnur H. Ævarsdóttir og Tryggvína Þorvarðardóttir.
3. sæti: Eik E: Sigrún Ísleifsdóttir, Jón Óskar Ísleifsson og Telma Axelsdóttir.
Úrslit rennuflokkur
1. sæti: Ösp: Kristján Vignir Hjálmarsson
2. sæti: Nes: Ástvaldur Ragnar Bjarnason
Úrslit BC 1-4
1. sæti: ÍFR: Aneta Beata Kaczmarek og Hjörleifur Smári Ólafsson
2. sæti: Ösp/Þjótur: Kjartan Ásmundsson Ösp og Sigurður Smári Kristinsson Þjótur.
3. sæti: Ösp: Karen Axelsdóttir og Kristín Jónsdóttir

 

Íþróttafélagið Nes fékk veglega styrki frá Nettó,Púttfélagi Suðurnesja og Petrínu Sigurðardóttur, þökkum við þeim kærlega fyrir styrkina og stuðninginn.

 

05.06.2022 10:15

Aðalfundur Íþróttafélagsins Nes

Aðalfundur Íþróttafélagsins Nes var haldin 25 apríl og fór fram kosning til stjórnarstarfa. Ragnar Birkir Bjarkason var kosin formaður til 2 ára. Íris Dögg Ásmundsdóttir kosin varaformaður til 1 árs. Laufey Þorgeirsdóttir kosin gjaldkeri til 1 árs. Jóhann Jóhannssonkosin ritari til 2 ára. Petrína Sigurðardóttir kosin meðstjórnandi til 2 ára. Ingunn Halldóra Rögnvaldsdóttir kosin varamaður til 1 árs. Guðný Óskarsdóttir og Bryndís Brynjólfsdóttir kosnar fulltrúar iðkenda til 1 árs.

 
 
 

11.04.2022 11:04

Páskafrí

Íþróttafélagið Nes er komið í páskafrí.

Æfingar hefjast á nýjan leik 19.apríl.

Við óskum ykkur gleðilegra páska og vonum að þið njótið vel og náið að hlaða batteríin.

Páska íþróttakveðja

Íþróttafélagið Nes

 

24.02.2022 14:32

Síða lá niðri

Við biðjumst afsökunar á að heimasíða lá niðri. Sökin lá í notandanafna breytingum hjá kerfinu. Ekki mátti lengur hafa punkt i nafninu. Síðan er komin upp og vonumst til að verði ekki meira vesen. 

Einnig viljum við benda á frabært starf hjá Ungmennafélögunum Njarðvík og Keflavíkur sem eru að bjóða upp á námskeið í fótbolta og körfubolta fyrir aldurinn  6 - 13 ára. Hvet ykkur til að skoða þessi námskeið hvort þau henti ykkur

 

.

Flettingar í dag: 97
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 66
Gestir í gær: 15
Samtals flettingar: 185832
Samtals gestir: 22157
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 21:36:20

Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum

Nafn:

Íþróttafélagið NES

Afmælisdagur:

17 nóvember 1991

Staðsetning:

Suðurnes, Ísland

Um:

Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðning

Tenglar