Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes |
|
Markmið og tilgangur NES
NES hefur það að markmiði að efla gott íþróttastarf fyrir fatlaða, gefa fötluðum
tækifæri á að iðka íþróttir á jafnréttisgrundvelli, að mæta einstaklingum þar sem
þeir eru og þeir fái að njóta sín.
Tilgangur NES er að bjóða uppá íþróttir fyrir alla, huga að andlegri og líkamlegri
vellíðan iðkenda, stuðla að heilbrigði iðkenda. Einstaklingurinn fái að njóta sín,
jafnt í liða og einstaklings íþróttum.
Boðskapur NES er að það sé réttur allra að stunda íþróttir, allir fái tækifæri sama
hver fötlun þeirra sé. NES vill auka færni einstaklinga til að njóta betra lífs með
þátttöku í liða og félagsstarfi.
Það sem NES stendur fyrir er jöfn tækifæri, heilsa, heilbrigði, félagsskapur, góð
þjálfun, árangur og metnaður. Við viljum að iðkendur og almenningur tengi þessi
hugtök við félagið og sig sjálfa, að iðkendur vilji taka þátt á sínum forsendum og
finni sinn stað innan félagsins hvort sem það sé vegna félagsskapar, vellíðunar
eða árangurs.
NES er fyrir alla einstaklinga á öllum aldri sem eiga við einhvers konar fötlun eða
röskun að stríða. Flettingar í dag: 247 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 319 Gestir í gær: 25 Samtals flettingar: 105766 Samtals gestir: 8269 Tölur uppfærðar: 2.2.2023 12:02:30 |
Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Nafn: Íþróttafélagið NESTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 17 nóvember 1991Staðsetning: Suðurnes, ÍslandÖnnur vefsíða: https://www.facebook.com/ibrottafelagid.nes.1Um: Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðningTenglar
|
© 2023 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is