Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes |
|
12.04.2012 07:58Viljið þið koma einhverju til stjórnar ?Góðan daginn. Í kvöld er fundur hjá stjórn NES og langar okkur að athuga hvort það sé eitthvað sem þið viljið að við tölum um á fundinum. Margt er framundan svo sem nýjir gallar, mót, fjáraflanir,aðalfundur og lokahóf. Endilega sendið okkur póst á nes.stjorn@gmail.com eða í innboxið á Facebook ef eitthvað er sem þið viljið að við tökum á eða bætum. kv Stjórnin. 10.04.2012 11:28Æfingar byrja 11.aprílSæl öll. Æfingar byrja 11.apríl á miðvikudaginn. Engin sundæfing eða Garpasund í dag þriðjudag. Sjáumst hress og kát. 30.03.2012 14:02Íslandsmót ÍF.Fjörið hefst með frjálsum í dagÍslandsmót ÍF í borðtennis, boccia, lyftingum, sundi, frjálsum og bogfimi hefst í dag. Við hefjum leik á frjálsum kl. 17:00 í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Hér að neðan fer tímaseðill helgarinnar. Dagskrá Íslandsmóts ÍF 30. mars - 1. apríl 2012 Reykjavík Keppnisgreinar: Boccia, sund, lyftingar, borðtennis, bogfimi og frjálsíþróttir Boccia: Laugardalshöll Sund: Laugardalslaug Lyftingar: Laugardalshöll/ bíósalur Borðtennis: ÍFR húsið Bogfimi: Frjálsíþróttahöll Frjálsíþróttir: Frjálsíþróttahöll Tímaskrá: Frjálsíþróttir - Frjálsíþróttahöllin í Laugardal Föstudagur 30. mars: Upphitun 16:30 - keppni hefst kl. 17:00 Boccia - Laugardalshöll Laugardagur 31. mars: 09:00-18:00 (9:30 fararstjórafundur, 10:00 mótssetning, 10:30 keppni í boccia hefst). Sunnudagur 1. apríl: 09:00-14:00 Sund - Laugardalslaug Laugardagur 31. mars: Upphitun kl. 14:00 - keppni 15:00 Sunnudagur 1. apríl: Upphitun kl. 09:00 - keppni 10:00 Lyftingar - Laugardalshöll/bíósalur Laugardagur 31. mars: Vigtun kl. 12:00 - keppni kl. 14:00 Borðtennis - ÍFR húsið í Hátúni Laugardagur 31. mars: Keppni hefst kl. 11:30. Bogfimi - Frjálsíþróttahöllin í Laugardal Laugardagur 31. mars: Keppni hefst kl. 11:00 Sunnudagur 1. apríl: Keppni hefst kl. 10:00 19.03.2012 07:46Æfingar mánudaginn 19.marsHæ hæ Æfingar í dag mánudaginn 19.mars: Frjálsar yngri kl 17:15 - 18:15 Frjálsar eldri kl 18:15 - 19:15 Sund eldri Sunnubraut kl 19:00 - 20:00 Sjáumst hress og kát :) 14.03.2012 12:37Æfingar 14.marsVegna veikinda fellur YNGRI BOCCÍA NIÐUR Í DAG MIÐVIKUDAGINN 14.MARS. Eldri boccíaæfing kl 18:30 Þorgerður þjálfari sér um hana. Fótboltinn er svo í kvöld á sínum tíma :) 13.03.2012 16:03Lokahóf Íslandsmóta ÍFLokahóf Íslandsmóta ÍF í Gullhömrum sunnudaginn 1. aprílLokahóf Íslandsmóta ÍF fer fram í Gullhömrum sunnudaginn 1. apríl næstkomandi en Gullhamrar eru við Þjóðhildarstíg 2. Ingó veðurguð og Einar Örn í Svörtum fötum munu halda uppi fjörinu að loknu borðhaldi.Verð kr. 5700 á mann. Húsið opnar kl. 19:00 Borðhald hefst kl. 19:30 Forréttur Villisveppasúpa með nýbökuðu brauði. Aðalréttur Grísalund með sætum kartöflum, aspas, strengjabaunum og sinnepssósu. Eftirréttur Heit eplakaka með karamellusósu og vanilluís. Sjáumst öll hress og kát á Íslandsmótinu og lokahófinu. 07.03.2012 12:29HITTINGUR.HITTINGUR HJÁ OKKUR Í MARS :) NÚ ÆTLUM VIÐ AÐ SKELLA OKKUR Í BÍÓ SUNNUDAGINN 11.MARS KL 15:30 Í SAMBÍÓIN KEFLAVÍK. VIÐ ÆTLUM Á JOURNEY 2 :) HÉR ERU NOKKUR TILBOÐ FYRIR YKKUR: 1. BÍÓ 850 KR 2. BÍÓ + GLERAUGU 1.000 KR 3. BÍÓ + LÍTILL POPP OG LÍTIL KÓK 1.100 KR 4. BÍÓ + MIÐ POPP OG MIÐ KÓK 1.250 KR ENDILEGA LÁTIÐ BERAST AÐ VIÐ SÉUM AÐ SKELLA OKKUR Í BÍÓ ÞETTA ER BÆÐI FYRIR YNGRI OG ELDRI. KV STJÓRNIN. 06.03.2012 20:52Æfingarbúðir í sundi.Þriðjudagur 6. mars 2012 11:30
Opnar æfingabúðir ÍF í sundiHelgina 10. til 11. mars næstkomandi fara fram opnar æfingabúðir ÍF í sundi. Æfingabúðirnar munu fara fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði.Þeir sem hyggja á mætingu þessa helgina við opnu æfingabúðirnar þurfa að geta synt hjálpartækjalaust og getað klárað æfingu sem er 90-120 mín löng. Þjálfarar frá aðildarfélögum (fatlaðra/ófatlaðra) eru hvattir til að mæta með iðkendum sínum. Á laugardeginum geta gestir við æfingabúðirnar keypt hádegismat fyrir kr. 1500,- Opnu æfingabúðirnar fara fram á eftirfarandi tímum og eru allir velkomnir: Ásvallalaug Laugardagur 10. mars? 08.00-10.00 Æfing ?Hlé 12:30-13:00 Matur 13-13:45 Fyrirlestur Hvíld 14.30-16.00 Æfing Sunnudagur 11. mars? 09.00-11.00 Æfing 06.03.2012 08:12Æfingar.Góðan daginn. Æfingarnar í dag : Sund yngri: kl 17:15 - 18:15 Heiðarskóla. Garpasund eldri: 18:15 - 19:15 Hafið góðan dag kæru Nesarar. 06.03.2012 07:56ÓtitlaðUm 10-15 iðkendur æfa reglulega hjólastólahandbolta á vegum HK. Æfingar
eru í Kórnum í Kópavogi, tvisvar í viku, á miðvikudögum frá 19.10-20 og á
laugardögum frá 12.30 - 13.30. Þjálfarar eru tveir, Darri McMahon & Magnús Magnússon. Á æfingum er farið í klippingar og skot úr ýmsum stöðum og sókn sem vörn auðvitað einnig æfð, oftast með misjafnlega löngum leikjum á hverri æfingu. Nánari upplýsingar gefur Friðrik Þór Ólason fridrik84@gmail.com 27.02.2012 13:55ÓtitlaðNý og spennandi vika að hefjast hjá okkur í NES :)
Frjálsar yngri:17.15-18.15 (íþróttahús Heiðarskóla) Frjálsar eldri: 18.15-19.15 (íþróttahús Heiðaskóla) Sund eldri: 19.00-20.00 (Vatnaveröld) Vonumst til að sjá ykkur sem flest á æfingu í dag :) Flettingar í dag: 1539 Gestir í dag: 249 Flettingar í gær: 428 Gestir í gær: 78 Samtals flettingar: 212319 Samtals gestir: 29294 Tölur uppfærðar: 26.11.2024 12:44:14 |
Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Nafn: Íþróttafélagið NESTölvupóstfang: nes.stjorn@gmail.comAfmælisdagur: 17 nóvember 1991Staðsetning: Suðurnes, ÍslandÖnnur vefsíða: https://www.facebook.com/ibrottafelagid.nes.1Um: Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðningTenglar
Eldra efni
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is