Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes |
|||
04.09.2013 12:58Arnar Helgi hjólastólakappi skorar á þig að vera meðKynningarverkefni Íþróttasambands fatlaðra „Vertu með“ heldur áfram og að þessu sinni er það Arnar Helgi Lárusson sem skorar á fólk að vera með. Arnar er frjálsíþróttamaður hjá Nes og er eini Íslendingurinn sem stundar hjólastólakappakstur svo þegar hann segir „Vertu með“ þá meinar hann það! Hvet alla að kynna sér meðfylgjandi myndband:
28.08.2013 23:53Æfingartafla NESÍþróttafélagið NES Æfingatafla 2013 – 2014 Sund Yngri Þriðjudagar kl. 17:15-18:15 (Heiðarskóli) Fimmtudagar kl. 17:15-18:15 (Heiðarskóli) Eldri Mánudagar kl. 19:00-20:00 (Vatnaveröld) Þriðjudagar kl. 19:30-20:30 (Akurskóli) Fimmtudagar kl. 18:45-19:45 (Akurskóli)
Garpasund (eldri) Þriðjudagar kl. 18:15-19:15 (Heiðarskóli)
Frjálsar Yngri Mánudagar kl. 17:15-18:15 (Heiðarskóli) Eldri Mánudagar kl. 18:15-19:15 (Heiðarskóli)
Fótbolti Eldri Þriðjudagar kl. 20.30-21.30 (Reykjaneshöllin)
Föstudagar kl. 20.30-21.30 (Reykjaneshöllin)
Boccia Yngri Miðvikudagar kl. 17:15-18:15 (Heiðarskóli) Eldri Miðvikudagar kl.18:15-20:15 (Heiðarskóli)
__________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________ Æfingargjöld NES- 2013-2014 Haustönn: 13 þús. kr. / Vorönn: 13 þús. kr. / Sumarönn: Fer eftir greinum (Systkinaafsláttur er í boði (50% afsláttur af æfingargjöldum) ___________________________________________________________________________________________________________________________________________________________ Þjálfarar NES- 2013-2014
Sund (yngri og eldri) Ingi Þór Einarsson S: 694 7323
Garpasund (eldri) Birkir Þór Karlsson S: 865 4787
Frjálsar íþróttir (yngri og eldri) Elísabet Rósa Elíasd. S: 770 5229
Boccia (yngri) Petrína Sigurðard. S: 892 8802
Boccia (eldri) Daníel Reynisson S: 849 3806 Þorgerður Jóhannsd. S: 847 6097
Fótbolti Stefán Óskar Gíslason S: 868 3912
Skrifað af Stjórn NES 15.08.2013 09:06ATH áhuga fyrir fjáröflun.Komið þið sæl. Okkur hjá NES var að bjóðast fjáröflun hjá honum Ása (skötumessu) á Ljósanótt. Er okkur boðið að vera með kaffisölu á sýningu sem hann er með þá helgi. EN þetta er ekki hægt nema að manna vaktir dagana 5 - 8 ágúst og 4 tíma í senn. Ef þið hafið áhuga þá endilega sendið póst á nes.stjorn@gmail.com fyrir þriðjudaginn 20.ágúst. kv stjórnin. 05.07.2013 00:11GolfæfingarSæl öll Nes getur með ánægju tilkynnt að byrjað verður með golfæfingar frá og með næsta sunnudag. Karen Guðnadóttir mun sjá um æfingarnar en hún er meðlimur í Golfklúbbi Suðurnesja (GS). GS mun styðja Nes með þeim hætti að Nes má nota aðstöðu GS að öllu leyti og mun Karen stjórna því og mun GS m.a. sjá um að skaffa allar golfkúlur á æfingunum. Best væri að iðkendur kæmu með kylfur sjálfir en ef það er ekki hægt mun GS koma á móts við það eins og hægt er. Æfingarnar eru á sunnudögum og eru eftirfarandi: 7. 14. og 21. júlí frá kl. 19:00 – 20:00 og svo 11. ágúst frá kl. 19:00 – 20:00 og er mæting hjá Golfskála Suðurnesja. Einnig er fyrirhugað að hafa eina æfingu á virkum dögum á þessu tímabili en vegna anna hjá Karen er ekki hægt að ákveða nákvæma dagsetningu nema með skömmum fyrirvara og verða þessar æfingar því auglýstar síðar með 1-2 daga fyrirvara, biðjum iðkendur að fylgjast vel með því á facebook. Um er að ræða 8 æfingar og er æfingagjaldið 3000 krónur sem þarf að greiðast á sunnudaginn. Hvetjum alla Nesarar til að mæta á golfvöllinn í sumar með góða skapið og höfum gaman undir styrkri leiðsögn Karenar. Kveðja Stjórn Nes 02.07.2013 13:38Minningarmót í golfi
Minningarmót Harðar Barðdal verður haldið á púttvellinum við Hraunkot, mánudaginn 15. júlí kl. 18.00
Hraunkot er á svæði golfklúbbsins Keilis Hafnarfirði en æfingar GSFÍ hafa farið fram á æfingasvæði Keilis undanfarin ár.
Veitt eru verðlaun í flokki fatlaðra og ófatlaðra og eru allir velkomnir að taka þátt í þessu móti.
Einnig verður afhentur hvatningarbikar GSFÍ sem er farandbikar gefinn af dætrum Harðar Barðdal í minningu hans .
Skráning í mótið fer fram á staðnum 01.07.2013 23:35Heimsmeistaramót fatlaðra í sundiTilkynning frá ÍF Miðasala er hafin á Heimsmeistaramót fatlaðra í sundi sem fram fer í Kanada í ágústmánuði. 01.07.2013 23:08Arnar Helgi Lárusson að keppa á HM fatlaðraHeimsmeistaramót fatlaðra í frjálsum íþróttum fer fram í Lyon í Frakklandi dagana 19.-28. júlí næstkomandi. Ísland mun eiga þrjá fulltrúa á mótinu en það eru þau Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir, Helgi Sveinsson og Arnar Helgi Lárusson. Stjórn Nes óskar Arnari, Matthildi og Helga velfarnaðar á mótinu og sendir þeim baráttukveðjur. Stjórn Nes 01.07.2013 22:46Tilkynning frá ÍSÍ
22.06.2013 12:37Landsmót UMFÍSælir allir iðkendur Nes og aðstandendur
Eins og þið vonandi vitið verður landsmót UMFÍ haldið á Selfossi dagana 4.-7. júlí í sumar. Það verður að sjálfsögðu keppni fatlaðra íþróttamanna í frjálsum íþróttum, sundi og boccia. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu UMFÍ sem er umfi.is. Á landsmótum er kjörið tækifæri fyrir fólk að keppa fyrir framan marga áhorfendur og að taka þátt í sameiginlegu keppnisliði héraðssambanda og íþróttabandalaga. Sumir telja ekki hægt að keppa á landsmóti því æfingar séu ekki á sumrin í ákveðnum greinum en slíkt hefur ekki stoppað ófatlaða íþróttamenn sem mæta tugum saman með sínu héraðssambandi á landsmótin. Með þáttöku á mótinu er verið að reyna að auka veg fatlaðra íþróttamanna á þeim vettvangi og því hvet ég alla Nesara til að skrá sig og mæta. Mótshaldið er með þeim hætti að keppt er í einum aldursflokki óháð aldri. Ekki er neitt aldurstakmark í greinar á mótinu, nema þess sé sérstaklega getið í keppnisreglum viðkomandi sérsambands. Þetta á við í skotfimi. Í öðrum greinum verða þjálfarar og foreldrar að meta hvort krakkar og unglingar geti keppt.
MIKILVÆGT – SKRÁNINGU LÍKUR Á HÁDEGI NÆSTA MÁNUDAG (mánudaginn 24. júní). Nesarar skrá sig hjá Keflavík, farið inn á einar@keflavik.is og skráið hvað þið ætlið að keppa í og hvort verður keppt í flokki hreyfihamlaðra eða þroskahamlaðra. Einnig hægt að hafa samband við Einar Haraldsson, formann Keflavíkur, sem sér um skráninguna í síma 421-3044 og 897-5204. Keflavík er Ungmennafélag og Nesarar munu keppa undir merkjum Keflavíkur. Keflavík sér um að greiða keppnisgjaldið fyrir keppendur (líka Nesara) en keppendur verða þar með að kaupa keppnispeysu frá Keflavík sem kostar 6000 kr ( er niðurgreidd um 2000 kr).
Í boccia er hægt að skrá sig bæði í einstaklings- og liðakeppni og má vera blandað í liði – mamma og pabbi, afi og amma og systkini sem dæmi.
Í frjálsum er hægt að skrá sig í 100 og 400 m hlaupi og hjólastólaakstri, langstökki með atrennu, kúluvarpi og spjótkasti.
Í sundi er keppt í 50m bringu, 50m skrið, 50m flug, 50m bak, 100m bringu, 100m skrið, 100m bak og 100m fjórsundi.
Keflavík mætir með 40-50 manna hóp á Selfoss og verður búið að afmarka svæði fyrir Keflavíkinga á tjaldsvæðinu. Guðmundur Sigurðsson, formaður Nes, verður fararstjóri og tjaldbúðastjóri.
Með von um að við sjáumst í júlí á Selfossi 14.06.2013 15:07NES er farið í sumarfrí !!!!Takk innilega fyrir frábært kvöld á lokahófinu allir þeir sem sáu sér fært um að mæta á Lokahóf NES. Frábært kvöld með frábæru fólki. Við óskum verðlaunahöfum innilega til hamingju en leggjum áherslu á að þið ÖLL eruð sigurvegarar. Þið gerið NES að því sem það er með að mæta og taka þátt. Það er yndislegt að sjá og upplifa hvað NES er orðið öflugt félag með frábæra iðkendur, aðstandendur sem standa þétt að baki iðkenda, menntaðarfulla þjálfara og góða velunnara. Takk fyrir frábært starf þetta ár og nú höldum við glöð í bragði í sumarið. NES er farið í sumarfrí (fyrir utan einhverja fótboltaæfingar og hugsanlega golf æfingar, nánar auglýst síðar, áhugasamir fylgist með á facebook: ( https://www.facebook.com/#!/ibrottafelagid.nes.1 ). Sumarkveðja Stjórn NES
16.01.2013 19:23
15.01.2013 16:11Frá stjórn NESÁ síðasta stjórnarfundi barst stjórninni erindi vegna tímasetningu á fótboltaæfingum og gerð var athugasemd á breyttum áherslum hjá NES. Viljum við í stjórn NES gera svar okkar aðgengilegt fyrir alla iðkendur og aðstandendur innan NES þar sem fleiri hafa verið að spyrjast fyrir um fótboltann og líka til að fara yfir hver staðan er og hvað er framundan hjá NES. Hvetjum alla til að gefa sér smá tíma og lesa þetta yfir .
Efni: Stjórnarfundi NES barst bréf frá aðstandanda iðkanda þar sem kom fram m.a. óánægja með tímasetningu á fótboltaæfingum á vegum félagsins. Málið var tekið fyrir og rætt og eru niðurstöður þessar: 28.08.2012 14:352012-2013Íþróttafélagið NES Æfingatafla 2012-2013 Sund Yngri -Þriðjudagar: kl. 17:15-18:15 (Heiðarskóli) -Fimmtudagar: kl. 17:15-18:15 (Heiðarskóli)
Eldri -Mánudagar: kl. 19:00-20:00 (Vatnaveröld) -Þriðjudagar: kl. 19:30-20:30 (Akurskóli) -Fimmtudagar: kl. 18:45-19:45 (Akurskóli)
Garpasund (eldri) -Þriðjudagar: kl. 18:15-19:15 (Heiðarskóli)
Boccia Yngri -Miðvikudagar: kl. 17:15-18:15 (Heiðarskóli)
Eldri -Miðvikudagar: kl. 18:15-20:15 (Heiðarskóli)
Frjálsar Yngri -Mánudagar: kl. 17:15-18:15 (Heiðarskóli)
Eldri Mánudagar: kl. 18:15-19:15 (Heiðarskóli)
Fótbolti Eldri -Þriðjudagar: kl. 21:30-22:30 (Reykjaneshöllin) -Fimmtudagar: kl. 21:30-22:30 (Reykjaneshöllin)
Athugið! Æfingartímar í fótboltanum geta breyst. Verið er að vinna í því að flýta þessum æfingartímum. Látum vita ef það tekst. ______________________________________________________________________ Æfingargjöld NES 2012-2013 Haustönn: 10 þús. kr. / Vorönn: 10 þús. kr. / Sumarönn: 5 þús. kr. Systkinaafsláttur er í boði (50% afsláttur af æfingargjöldum fyrir annað barni 28.08.2012 03:33Fundargerð kynningarfundar hjá NES27.ágúst 2012 Kynning -Petrína Sigurðardóttir bauð fundargesti hjartanlega velkomna til fundarins og kynnti stjórn NES
Hún kynnti að hún sjálf væri formaður NES Hlynur Jónsson er varaformaður NES Ingunn Rögnvaldsdóttir er gjaldkeri NES Katrín Ruth Þorgeirsdóttir er ritari NES Gunnar Már Másson er meðstjórnandi í stjórn NES Drífa Birgitta Gunnlaugsdóttir er meðstjórnandi í stjórn NES Júlíus Júlíusson er meðstjórnandi í stjórn NES Guðný Óskarsdóttir er fulltrúi NES-ara í stjórn NES Vilhjálmur Jónsson er fulltrúi NES-ara í stjórn NES -Hlynur varaformaður kynnti að stjórn NES væru búin að skipta með sér verkum og mynda tengiliði stjórnar við þjálfara sem og aðstandendur: Hlynur og Gunnar verða tengiliðir stjórnar við fótboltann Petrína og Júlíus verða tengiliðir stjórnar við frjálsar og boccia Katrín Ruth og Gunnar verða tengiliðir stjórnar við sundi ....... Hlynur benti á að aðstandendur og iðkendur geta snúið sér beint til þessara tengiliða séu einhverjar fyrirspurnir eða athugasemdir sem og sent erindi beint til stjórnar á emailið: nes.stjorn@gmail.com. -Minnst var á það að stjórnarfundir verða alltaf einu sinni í mánuði nema eitthvað komi uppá. Þessir fundir verða alltaf fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði. Iðkendur,aðstandendur og aðrir velunnarar NES eru hvattir að senda inn fyrirspurnir og athugasemdir ef þeir kjósa svo fyrir þessa stjórnarfundi og þá verða mál þeirra formlega fyrir á þessum fundum. Þjálfarar hjá NES -Tilkynntir voru þeir þjálfarar sem verða að störfum hjá NES þetta starfsárið: Ingi Þór Einarsson mun sjá um sundið fyrir yngri og eldri Birkir Þór Karlsson mun sjá um GARPASUNDIÐ og boccia yngri Unnur Helga Snorradóttir mun sjá um frjálsar íþróttir fyrir yngri og eldri ... en Petrína Sigurðardóttir verður henni til aðstoðar á þessum æfingum, ef þarf. Daníel Reynisson og Þorgerður Jóhannsdóttir munu sjá um boccia eldri. Stefán Óskar Gíslason mun sjá um fótboltann. Æfingar -Rætt var um það að fjöldi æfinga í hverri íþróttagrein fyrir sig er sá sami og hefur verið síðastliðið ár fyrir utan það að búið er að bæta við einni sundæfingu á viku fyrir eldri hópinn og verða því þær æfingar þrisvar sinnum í viku. -Katrín skaut því að verið er að reyna að koma eldri sundhópnum inní Vatnaveröld með sundæfingar en enn sem komið er erum við bara komin með eina æfingu þar í viku en hinar tvær verða í Akurskóla. Ef það breytist lætur stjórn alla vita af því. -Einnig var rætt um fótboltann og kom fyrirspurn úr sal hvort æfingar yrðu aftur svona seint eins og síðasta vetur. Svarið við því var þess eðlis að reynt verður eftir fremsta megni að fá æfingar innanhúss í Reykjaneshöllinni í vetur eins snemma og mögulegt er. Eins og er verða fótboltaæfingar utanhúss eins lengi og hægt er og mun koma í ljós hvaða tímar NES verður úthlutað í höllinni. Stjórn NES lætur vita um leið og þetta er komið betur í ljós. Mót/keppnir -Rætt var um að NES stefnir að fara á öll þau mót sem það mögulega kemst á sem og stefnt er að því að halda innanfélagsmót í öllum greinum. Mót þessi eru t.d. Íslandsmót í Boccia á Ísafirði núna 11-13.október næstkomandi, Íslandsleika Special Olympics 6.október, Erlingsmótið í sund, Nýársmótið, Lionsmótið og margt margt fleira. Hann nefndi að stefna sé að iðkendur verði virkir í keppnum, sýnileg og verði félaginu til mikins sóma eins og okkar þeim er von og vísa. Æfingargjöld NES -Minnst var á æfingargjöldin hjá NES og talað um hversu miklu máli þau skipta félaginu m.a. vegna þess hversu kostnaðarsamt er að reka svona stórt íþróttafélag sem NES er orðið í dag. Mjög mikilvægt er því að allir iðkendur standi í skilum með æfingargjöldin. -Tekið verður stíft á því að iðkandi fái ekki að taka þátt í mótum eða fara í keppnir á vegum félagsins nema vera skuldlaus við NES. -Félagið hvetur alla þá sem eiga ógreidd æfingargjöld að standa skil á þeim sem fyrst og bent er á það að ALLTAF er hægt að semja um hlutina. -Æfingargjaldið er 10 þús. kr. á haustönn, 10 þús. kr. á vorönn ...en ætli iðkandi að vera á æfingum að sumri einnig sbr. og fótboltinn var núna í sumar að þá áskilur NES sér rétt að rukka inn sérstök æfingargjöld fyrir sumarönn en þá verða þau einungis 5 þús. kr. -Systkinaafsláttur er boði hjá NES og er 50 % af æfingargjöldum fyrir annað barnið. Mætingar á æfingar -Rætt var um mætingar á æfingar þ.e. að þjálfarar skrá hjá sér mætingar og verðlaunað verður fyrir góða mætingu. Stjórn NES hvetur alla þá iðkendur að mæta vel á æfingar, sýna menntað og dugnað á æfingum. Aðstoðarfólk á æfingum hjá NES -Nemendur frá FS verða áfram þjálfurum til halds og traust á æfingum hjá NES ásamt þeim einstaklingum sem sinna liðveislu og gætt verður þess að þeir skiptist jafnt á æfingar svo þeir nýtist sem best sem aðstoðarmenn þjálfara. Háttarlag NES-ara á mótum -Varðandi háttarlag á mótum að þá hvetur stjórn NES iðkendur að mæta alltaf í íþróttafatnaði merkt NES á mót og keppnir. -Vera flott og sýnileg og ávalt með hugann að verða félaginu til sóma hvar sem NES-arar koma. -Að vera í fatnaði merkt NES á æfingum er VAL, ekki skylda. -Nýir iðkendur eru beðnir að hafa samband við stjórnina uppá að panta viðeigandi íþróttafatnað á viðkomandi iðkanda. Mikilvæg regla varðandi þegar farið er á
mót -Rætt var um þegar farið verður á lengri mót og það er gist að þá er ÖLL notkun áfengis, vímuefna og tóbaks með öllu óheimil. Ef upp um notkun iðkanda kemst þá ber þjálfara að hafa samband strax við foreldri/forráðamenn eða aðstandenda. Iðkandi er þá annaðhvort sóttur af aðstandenda eða sendur heim á kostnað þeirra eða síns eigins. Þessar reglur samræmast reglum ÍF. Mánaðarlegu hittingarnir -Katrín ræddi um þá mánaðarlegu hittinga sem NES hefur verið vant að halda síðastliðin ár og stefnir á að gera aftur þetta starfsár. -Talað var um að það að NES snýst ekki bara um að koma og æfa einhverja íþrótt heldur snýst NES einnig um það að vera saman sem hópur og gera eitthvað skemmtilegt saman. -Reynt verður að hafa hittingana alltaf í byrjun hvers mánaðar og verður mismunandi gert hverju sinni sbr. í September ætlum við að halda eitt stykki diskótek, í Október ætlum við út að borða og eiga góða stund saman, í Nóvember verður smá svona surprise (nánar auglýst síðar) og í Desember ætlum við að halda JÓLABINGÓ, nánar tiltekið 2.desember. Jólabingó -Jólabingó er nýung frá því í fyrra en þá komu um 120 manns til að spila bingó saman og voru ógrynni af vinningum í boði. Stefnan er að gera slíkt hið sama í ár og vonast stjórn NES að eftir því að enn fleiri komi á BINGÓ-ið. Stjórn NES hvetur alla að taka höndum saman fyrir félagið og auglýsa þetta vel. Þetta er afar skemmtilegur hittingur sem og góð fjáröflun fyrir félagið. Sannarlega hittingur gefur af sér. Netskrif og auglýsingar -Rætt var um netskrif og auglýsingar innan NES. Félagið hefur tvær síður í gangi annarsvegar eru NES á facebook og svo er NES með bloggsíðu sem ber heitið nessport.123.is. Þjálfarar og stjórn hafa aðgang að þessum síðum og skrifa inná þessar síður þegar við á sbr. minna á æfingar, auglýsa fjáraflanir, hittinga og margt fleira. -Stjórn NES stefnir að því að uppfæra bloggsíðuna, gera hana aðgengilegri og skemmtilegri og biður stjórn NES alla sem vi að koma með tillögur að breytingum á síðunni. -Bent var á facebook-síðan er stærsti auglýsingamiðill NES og er með stóran hluta iðkenda inná hjá sér sem vini. Bent var á það að þessi síða NES er ÖLLUM opin og geta ALLIR komist inná facebook síðu NES þrátt fyrir að vera ekki með facebook eða vera formlegur vinur NES. Iðkendur voru hvattir að fylgjast vel á þessum síðum á netinu og vera í virku sambandi við þjálfara og stjórn ef eitthvað kemur uppá. -Ásamt þessu var bent á NES er með email; nes.stjorn@gmail.com. NES hvetur alla þá sem hafa eitthvað fram að færa, vilja koma með eftirspurn eða hvað sem er að senda stjórninni línu á þetta póstfang til dæmis fyrir stjórnarfundi hjá NES. Einnig er þó hægt að senda póst til okkar í gegnum facebook. Fjölmargir hafa nýtt sér það. -Rætt var um að virka enn frekar Felix-kerfið en það er miðlægt tölvukerfi ÍSÍ og UMFÍ og heldur utan um íþróttaiðkendur á Íslandi. Nýjir félagar eru hjartanlega velkomnir -Rætt var um að fyrstu 2 vikurnar eru fríar hverjum nýjum iðkanda. Eftir 2 vikur tekur iðkandi ákvörðun hvort hann vill vera áfram eður ei í NES. Sé ákvörðun tekin að koma og æfa með NES er gjaldkeri látinn vita af öllum helstu upplýsingum um viðkomandi og rukkun æfingargjalda fer fram. Foreldraráð -Rætt var um gildi þess að hafa foreldraráð og hversu nauðsynlegt er að hafa stuðning foreldra í íþróttafélagi sem þessu. Hlutverk foreldráðs er að styðja við iðkendur á æfingum, mótum og keppnum o.s.frv. Veita aðstoð á stærri viðburðum NES sbr. við ýmsar fjáraflanir t.d. jólabingó, Lionsmót og fleira. -Rætt var um að NES þyrfti á nýju fólki inní þetta ráð og hvatti aðstandendur að bjóða sig fram. Því fleiri því betra. Fram kom að þetta er ekki yfir heildina séð mikil vinna en svo sannarlega skemmtileg og gefandi. -Eitt foreldri bauð sig fram í foreldraráð NES, aðrir ætla að hugsa málið. Fjáraflanir -Rætt var um fjáraflanir og sagt frá því að NES þarf stöðugt á því að halda að standa í ýmsum fjáröflunum til að eiga fjármagn til að reka sig og einnig til að geta gert eitthvað skemmtilegt sbr. að fara í keppnisferðir, fara á mót út fyrir landsteinanna og fleira. -Stjórn NES leitar stöðugt nýrra styrkja og styrktaraðila en þörf er einnig á að iðkendur og aðstandendur taki virkan þátt í fjáröflunum. -Rætt var um að hægt sé að gera ýmislegt s.s. selja líkt og í fyrra jólakort, jóla- merkisspjöld, jólasveinabækur, kærleikstré, dagatöl, lakkrís, klósettpappír, kaffi, páskaegg, blákorn, þrautabækur, segla á ísskápa sem á stendur "ÉG STYÐ NES" og svona mætti lengi telja. Malmö 2013 -Sagt var frá því að NES stefnir að fara í Keppnisferð til Malmö Svíðþjóð 8-10.febrúar næstkomandi. -NES mun senda iðkendur að keppa í sundi og í boccia.
-Allir sem vilja og æfa eftirfarandi íþróttagreinar eiga þess kost að fara svo fremur að þeir sýni menntað þ.e. mæti á æfingar (það er leyfilegt að verða veikur, bara láta vita ef þið komist ekki á æfingar), að NES-arar séu virkir á æfingum og séu SKULDLAUSIR við félagið. Skiptir mestu máli að mæta og sinna æfingum sínum vel. -Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum frá þeim sem fóru í febrúar síðastliðinn febrúar að þá má áætla að þetta muni kosta lágmark 80-90 þús. kr. á mann að fara. -Rætt var um að hver og einn iðkandi með sínum aðstandendum þarf að gera upp við hvort þeir vilji fara eður ei. Því ef svo er þarf að fara huga að því með stjórn NES hvaða fjáröflun er best að fara í, sem gefur vel af sér. Rætt var um að hafa bæði einstaklings fjáraflanir sem og hópurinn safnar saman í einn sjóð og allir græða á því sbr. Jólabingóið. -Rætt var um að eftir svona 2-3 vikur þyrfti fólk að vera komið með svar hvort það stefnir að því að fara eður ei, uppá að vita svona sirka fjöldann svo það sé hægt að fara vinna í að fá tilboð fyrir hópinn o.s.frv. Þetta er þó einungis ákvörðun sem snýr að því að taka stefnuna að því að fara en án þess að þurfa greiða eitt né neitt strax. Það kæmi síðar. -Lögð var mikil áhersla að byrja sem fyrst því tíminn líður HRATT. -Einnig varðandi Malmö er mikilvægt að huga að því að hvort viðkomandi iðkandi geti farið án aðstoðamanns eður ei. Skoða þarf þessi mál sem fyrst og gaumgæfilega. -Allt varðandi Malmö verður rætt ítarlega á næsta stjórnarfundi (6.september) og er fólk hvatt til þess að vera í sambandi við stjórnina ef einhverjar spurningar vakna. Önnur mál - Sýndir voru nýju fallegu gallarnir hjá NES sem og nýju bolirnir frá HENSON bæði bolir fyrir iðkendur og aðstandendur (sem á stendur " ÉG STYÐ NES"). Sagt var frá því að hver og einn iðkandi fær eitt sett (æfingagalli+bolur) á sérstöku tilboðsverði aðeins 2000 kr. Vilji einhver fá að kaupa annað sett að þá verður sá hinn sami að kaupa það á kostnaðarverði sem er um 15 þús. kr samanlagt (bolur+æfingargalli). -Aðstandendur og velunnarar NES voru hvattir að kaupa sér stuðningsmannabol. Einn bolur kostar 6500 kr. Sýna NES-urum stuðning. -Nýju fallegu sundfötin frá FINIS voru kynnt og vöktu mikla lukku. NES vill einnig gera vel við iðkendur sína er æfa sundið og veita þeim sérstakan afslátt sem hljóðar uppá að einn sundbolur eða ein sundskýla + sundhetta í merki NES fæst á 2000 kr. saman. En vilji iðkandi kaupa annað sett verður sá hinn sami að kaupa það á kostnaðarverði en það er 6800 kr. stykkið og um 1500 kr. sundhettan. -Minnst var á að NES er fyrir ALLA þá sem glíma við fötlun eða röskun af einhverjum toga. Í NES fá allir að njóta sín á sínum eigin forsendum. Virðing fyrireinstaklingnum er haldið vel á lofti sem og áhugi fyrir að efla þroska og hæfileika hans á þeim sviðum sem geta hans leyfir. Sé eitthvað sem þarf að huga sérstaklega að varðandi einhverja einstaklinga að þá er um að gera að láta vita af því og þá mun stjórn NES stuðla að því að því sé reddað hvort sem það snýr að útbúa sjónrænt skipulag, veita viðeigandi fræðslu o.s.frv. -Nokkrar fyrirspurnir úr sal komu um starfið og þá var Malmö helsta umræðuefnið. Lögð varð rík áhersla að byrja sem fyrst að huga að varðandi fjáröflun og var mikill spenningur hjá NES-urum fyrir þessum plönum og umræðu. -Minnst var á GARPASUNDIÐ þ.e. að þetta er nýjung hjá NES sem hófst síðustu áramót og var rætt um hvað það hefur slegið rækilega í gegn. Sagt var frá því að þetta eru ekki hefðbundnar sundæfingar heldur er markmiðið að gera það sem maður getur, njóta þess að vera í vatninu og gera léttar æfingar í vatninu. Stólalyfta er á staðnum fyrir þá sem þurfa á því að halda og aðstoð ofan í lauginni. Kjörið tækifæri fyrir alla, eldri en 14 ára, að koma og prufa. Æfingar hjá NES
hefjast.... -Í stuttu máli má segja sem svo að formlegar æfingar hjá NES byrja á miðvikudaginn 29.ágúst kl.17.15-18.15 með boccia æfingu yngri. Æfingar hjá eldri í boccia verður sama dag kl.18.15-20.15. Eftir þennan dag mun æfingarplönin haldast eins og æfingartaflan segir til um en þó með smá undantekningum þó til að byrja með þ.e....; -Sundæfing er í kvöld, þriðjudag kl.19.30-20.30 í sundlaug Akurskóla, hjá eldri hópnum þar sem sá hópur byrjaði í síðustu viku æfingar sökum þess að Ingi Þór vildi ná einni æfingu með hópnum áður en hann héldi að utan til að starfa sem dómari á Paralympics í London sem eru að fara að hefjast á morgun. Sundþjálfari mun leysa Inga af í eldri sundhópnum á meðan hann er úti á leikunum. -Sund hjá yngri hefst ekki fyrr en eftir 7.september, þegar Ingi er kominn heim. Það þýðir að fyrsta sundæfingin hjá yngri er þann 11.september kl.17.15-18.15 (sjá æfingartöflu). -Fótboltaæfingar eru komnar á nýjan tíma frá og með deginum í dag og verður því engin æfing í kvöld þriðjudag heldur þess í stað æfing annaðkvöld, miðvikudagskvöld kl.20.00 á sama stað og æfingar hafa verið haldnar undanfariuð (sjá æfingartöflu). -Garpasundið mun ekki byrja með æfingar fyrr en 4.september á sama stað og venjulega -Frjálsar hefjast 3.september sama stað og venjulega. Fleira var ekki rætt og fundi formlega
slitið Skrifað af Stjórn NES 25.08.2012 17:32Starfsemi NES hefst á nýJæja góðir hálsar þá líður að því að starfsemi NES hefjist á nýjan leik eftir gott sumarfrí. Vonandi eru allir búnir að hafa það gott í sumar. Nú er nýja stjórn NES búið að funda og skipuleggja veturinn og verður þetta spennandi vetur fyrir NES, margt sem verður á dagskránni. Til að kynna það sem og nýja þjálfara og nýja stjórn, afhenta æfingatöflur og fleira að þá ætlum við að hittast í sal Akurskóla mánudagskvöldið 27.ágúst næstkomandi kl.20:00 og halda smá kynningarkvöld. Allir gamlir sem og nýjir iðkendur, aðstandendur og velunnarar NES hjartanlega velkomnir. Eftir kynningarfundinn mun starfsemi NES byrja formlega með æfingar miðvikudaginn 29.ágúst með bocciaæfingu í íþróttasal Heiðarskóla. Yngri kl.17.15-18.15 og Eldri kl.18.15-20.15. Sjáumst sem flest bæði á æfingu sem og á kynningakvöldið. kv. Stjórn NES Skrifað af Stjórn NES Flettingar í dag: 1539 Gestir í dag: 249 Flettingar í gær: 428 Gestir í gær: 78 Samtals flettingar: 212319 Samtals gestir: 29294 Tölur uppfærðar: 26.11.2024 12:44:14 |
Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Nafn: Íþróttafélagið NESTölvupóstfang: nes.stjorn@gmail.comAfmælisdagur: 17 nóvember 1991Staðsetning: Suðurnes, ÍslandÖnnur vefsíða: https://www.facebook.com/ibrottafelagid.nes.1Um: Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðningTenglar
Eldra efni
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is