Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes |
|||||||||||||
04.04.2014 22:06Í dag hjá 88-Húsinu í Reykjanesbæ var vígð fyrsta hjólastólarólan á Íslandi. Það var Íþrótta- og tómstundaráð Reykjanesbæjar sem átti veg og vanda að uppsetningunni og kann Nes þeim bestu þakkir fyrir. Það var Ástvaldur Ragnar Bjarnason sem átti fyrstu salíbununa í nýju rólunni. 04.04.2014 07:58Vatnaveröld 4.apríl kl 16:30Alltaf nóg að gera hjá NES.
Í dag föstudaginn 4.apríl verður skrifað undir samstarfssamning á milli NES og Sundráðs ÍRB í Reykjanesbæ. Þetta er samningur um þjálfun á milli íþróttafélaga. Skrifa á undir samninginn kl 16:30 í Vatnaveröld. Allir hvattir til að mæta með sundföt og skella sér í laugina á meðan skrifað verður undir. kv stjórn NES. 03.04.2014 16:22Sumarbúðir ÍF á Laugarvatni 2014
Nes vegkur athygli á því að á heimasíðu Íþróttasambands fatlaðra ifsport.is er kominn bæklingur vegna Sumarbúða ÍF á Laugarvatni 2014. Nesarar eru eindregið kvattir til að kynna sér þetta á heimasíðu ifsport.is. 03.04.2014 10:40Ný hjólastólaróla hjá 88 Húsinu.Kæru NESARAR. Á morgun föstudaginn 4.apríl á að vígja Hjólastólarólu hjá 88 Húsinu í Reykjanesbæ kl 14:00. kv Stjórn NES. 28.03.2014 17:27Góð gjöf sem gefur. Elliheimilið Garðvangur í Garði er hætt starfsemi sinni og ákvað að gefa æfingatæki og spil úr félagsstarfinu til Nes til frekari notkunar. Nes þakkar kærlega fyrir þessa góðu gjöf og veit að þetta verður mikið notað. 24.03.2014 08:13Satlfisksveisla til styrktar NES
Þetta eðalfólk ætlar að styrkja NES með þessari flottu Saltfiskveislu. Tveir Vitar er veitingarstaður sem staðsettur er út á Garðskagavita Garði. Útsýnið er frábært og maturinn ekki síðri. Endilega skellið ykkur í góðan mat, flott útsýni og styrkið NES í leiðinni. Takk enn og aftur Tveir Vitar. kv NES 23.03.2014 23:01Íslandsmót ÍF í sundi og frjálsum
Sund 18.03.2014 15:34Aðalfundur NesAðalfundur Nes, Íþróttafélags fatlaðra á Suðurnesjum, verður haldinn miðvikudaginn 26. mars 2014 næstkomandi kl. 20:00 í Myllubakkaskóla, Reykjanesbæ. Skrifað af Stjórn Nes 17.03.2014 19:49Samstarfssamningur Nes og SandgerðisbæjarÞann 17. mars 2014 undirrituðu Nes og Sandgerðisbær samstarfssamning til 2 ára. Aðilar samkomulagsins eru sammála um mikilvægi starfsemi Nes sem hefur það að markmiði að skipuleggja íþrótta- og félagsstarf fyrir fatlaða á Suðurnesjum. Með samkomulaginu skuldbindur Nes sig til þess að halda uppi faglegu íþrótta- og félagsstarfi fyrir fatlaðra á svæðinu og Sandgerðisbær skuldbindur sig til að leggja starfsseminni lið með fjárstuðningi. Á myndinni undirrita Guðmundur Sigurðsson, formaður Nes, Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri Sandgerðis, og Vilhjálmur Þór Jónsson, íþróttamaður fatlaðra í Reykjanesbæ 2013, samninginn.
15.03.2014 21:38Takk!!!!Mikið svakalega var gaman hjá okkur í bingó-inu í dag!! Við þökkum kærlega fyrir góða mætingu og veittan stuðning frá ykkur kæra fólk! Það var ekki annað að sjá en að allir áttu góða stund og skemmtu sér vel ....við í Nes erum einnig ótrúlega þakklát þeim fyrirtækjum sem styrktu okkur um vinninga á þessu bingó-i. Þessi fyrirtæki eru; Krummi heildverslun, Ksport, Lyfja, Bónus, Gallerý, Skartsmiðjan, Eplið, Bræðurnir Ormsson, Gamla Pósthúsið, Voila, Bláa Lónið, Lyf og heilsa, Sundmiðstöð Reykjanesbæjar (Vatnaveröld), Fimir fingur, BYKO, Eymundsson, Bóksafn Reykjanesbæjar, Bústoð, Kóda, Olsen Olsen, Vocal Restaurant (Icelandair hotels), Sambíóin, Húsasmiðjan, Persóna, SI verslun, Útivist og sport, Fernandos, Glitbrá, Lokkar og línur, Apótek Suðurnesja, Hótel Keflavík, Tölvulistinn, Jón Sterki, Pulsuvaginn Tjarnartorgi og Subway. Þúsund þakkir fyrir þetta allt saman og takk fyrir frábæran dag. Skrifað af Stjórn Nes 06.03.2014 22:33Bingó-BingóBingó-Bingó!!! Íþróttafélagið Nes ætlar að halda Bingó í fjáröflunarskyni laugardaginn 15.mars næstkomandi í Holtaskóla, Reykjanesbæ kl.13.00. Fjöldi góðra vinninga. Verð á bingóspjaldi er einungis 500 kr. Ath. að þetta Bingó er opið ÖLLUM svo endilega verið dugleg að deila þessari auglýsingu okkar. Skrifað af Stjórn Nes 05.03.2014 20:57FundarboðFundur um knattspyrnuferðina til Svíþjóðar og um Special Olympics leikana í Belgíu verður haldinn á föstudaginn 7. mars kl. 19:00 í Íþróttaakademíunni á 2. hæð (lyfta á staðnum). Munum taka púlsinn á stöðunni. Munum ræða m.a. um fjáraflanir. Belgíufararnir munu mæta líka. Keppendur, aðstandendur og þjálfarar hvattir til að mæta. 05.03.2014 09:47Páskaegg frá Freyju 2014
Kæru Nesarar. Nú ætlum við að fara af stað með Páskaeggjasölu og erum við með egg frá Freyju: Rísegg og Draumaegg númer 6 og munu þau kosta 2.000 krónur frá ykkur. ATH að þessi fjáröflun er eyrnamerkt ykkur sjálfum og getið þið safnað annað hvort fyrir æfingargjöldum eða í ferðasjóð á ykkar nafni. Síðasti dagur til að skila inn pöntun er 29.mars á netfangið nes.stjorn@gmail.com Muna að senda með hve mörg egg þið viljið af hvoru páskaeggi, nafni ykkar og síma svo það sé hægt að láta ykkur vita hvar þið nálgist páskaeggin. Páskaeggin verða svo afhent viku fyrir páska. Ef það eru einhverjar spurningar endilega sendið okkur póst á emailið hjá NES. kv Stjórn NES. ATH Þegar þið eigið að rukka páskaeggin um leið og þið afhendið þau. Síðan komið þið með peninginn í umslagi merkt ykkur og hve mörg egg þið selduð til Gumma Sig formanns NES og hann sér um að borga hjá Freyju og leggja svo inn á ykkar nafn hjá NES.
18.02.2014 22:49Lágmörk vegna Evrópumeistaramóta í sundi og frjálsum íþróttum 2014Ólympíu- og afrekssvið ÍF hefur samþykkt tillögu íþróttanefnda og landsliðsþjálfa ÍF um að til þess að öðlast þátttökurétt á Evrópumeistaramót fatlaðra í sundi og frjálsum íþróttum þurfi einstaklingur að vera í B-hóp samkvæmt Afreksstefnu ÍF 2012 - 2020. Viðmið þessi gilda bæði vegna Evrópumeistaramóts fatlaðra í sundi sem fram fer í Eindhoven í Hollandi 4. - 10. ágúst n.k. og Evrópumeistaramóts í frjálsum íþróttum sem fram fer í Swansea í Wales 15. - 24. ágúst n.k.
Mynd/ EM fatlaðra í frjálsum 2014 fara fram í Swansea.
Kveðja/regards, Jón Björn Ólafsson Þjónustusvið ÍF/Service Manager Íþróttasamband fatlaðra/NPC Iceland 18.02.2014 19:55Á morgun Á morgun Á morgun Flettingar í dag: 1427 Gestir í dag: 194 Flettingar í gær: 428 Gestir í gær: 78 Samtals flettingar: 212207 Samtals gestir: 29239 Tölur uppfærðar: 26.11.2024 12:22:52 |
Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Nafn: Íþróttafélagið NESTölvupóstfang: nes.stjorn@gmail.comAfmælisdagur: 17 nóvember 1991Staðsetning: Suðurnes, ÍslandÖnnur vefsíða: https://www.facebook.com/ibrottafelagid.nes.1Um: Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðningTenglar
Eldra efni
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is