Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes |
|
05.03.2015 21:59Styrktarsjóður Nes og Skötumessunnar. Á fundi stjórnar í kvöld 05.03.2015 var i fyrsta sinn úthlutað úr styrktarsjóði Nes og Skötumessunnar Styrktarsjóður Nes og Skötumessunnar var stofnaður árið 2014 og hefur skírskotun til Skötumessu að sumri sem haldin er í Garði í júlí ár hvert. Styrktarsjóðnum er ætlað að styðja við Nesara sem eru að fara að keppa erlendis á vegum Íþróttasambands fatlaðra 16.02.2015 13:04Hæ hæ allir Nesarar Við munum vera með diskótek á fimmtudaginn næstkomandi í Eldingu, 19. febrúar, félagsmiðstöðinni úti í Garði. Diskótekið verður frá kl. 19:30-22:00. Allir hvattir til að mæta. Nes 09.02.2015 11:57Komið öll sæl Núna er Nes að fara að huga að Malmö 2016 og verður Nes með almennan félagsfund í Akurskóla laugardaginn 14. febrúar 2015 kl. 11:00 af því tilefni. Allir velkomnir. Á sama tíma ætlum við að vera með smá málþing sem Íris framkvæmdastjóri mun stýra og er tilefnið að fá hugmyndir ykkar um hvar Nes er statt í dag, hvað mætti betur fara og hverjar séu ykkar framtíðarhorfur. Að skapa skemmtilegar umræður. Sjáumst vonandi sem flest - iðkendur, þjálfarar, aðstandendur og aðrir Kveðja 01.02.2015 23:09Vörutalning í Hagkaup 22. febrúar kl. 09:00 Komið öll sæl og blessuð smile emoticon Vörutalningin í Hagkaup gekk svo vel síðast að við fáum hana aftur, að þessu sinni verður hún sunnudaginn 22. febrúar, (konudaginn) frá kl. 9 um morguninn. Talningin er eingöngu fyrir forráðamenn, Ekki iðkendur og Ekki börn og unglinga wink emoticon góð fjáröflun fyrir snillingana okkar smile emoticon Þad vantar 10-12 manns svo endilega skráið ykkur hér fyrir neðan eða hafið samband við Dóru Steinu (mömmu Loga Fannars í sundinu) í síma 899-5276 smile emoticon 16.01.2015 11:57Styrktarsjóður Nes og Skötumessunar. Opnað hefur verið fyrir umsóknir!!!Stjórn Nes vill minna á "Styrktarsjóð Nes og Skötumessunar" og benda þeim iðkendum á sem eru að fara á Special Olympics í LA núna í sumar 2015 að þeir geta sótt um styrk fyrir 10.febrúar´15, í þennan sjóð vegna þessa verkefnis. Endilega skoðið þetta vel með ykkar aðstandendum og sækið um ef þið viljið. Umsókn ásamt fylgigögnum skal senda rafrænt til: nes.stjorn@gmail.com fyrir 10.febrúar ´15 næstkomandi. http://nessport.123.is/files/
Skrifað af Stjórn Nes 04.01.2015 07:40Gleðilegt ár allir Nesarar nær og fjær og takk fyrir það liðna.
Æfingar Nes árið 2015 byrja á eftirfarandi tímum:
Frjálsar byrja mánudaginn 5. janúar kl. 17:15-18:15 í Heiðarskóla og eldri mæta kl. 18:15-19:15.
Knattspyrnuæfingar byrja þriðjudaginn 6. janúar kl. 20:30 í Reykjaneshöllinni. Hvetjum sem flesta til að mæta enda er spennandi verkefni framundan.
Garpasundið byrjar þriðjudaginn 6. janúar kl. 18:15-19:15 í Heiðarskóla. Hvetjum alla sem vilja stunda holla hreyfingu í vatni til að mæta. Margt skemmtilegt framundan.
Sundið byrjar með hefðbundnu sniði mánudaginn 5. janúar kl. 19:00-20:00 í Vatnaveröld.
Boccia byrjar með hefðbundnu sniði miðvikudaginn 7. janúar kl. 18:15-20:15 í Heiðarskóla.
Miðvikudaginn 7. janúar kl. 17:15-18:15 mun Nes bjóða öllum iðkendum undir 16 ára að mæta í íþróttaskóla í Heiðarskóla en í þessum tímum verður boðið upp á hinar og þessar skemmtilegar íþróttaþrautir.
Fimmtudaginn 8. janúar kl.18:00-19:00 verður haldið áfram með lyftingarnar eins og verið hefur í íþróttahúsinu á Sunnubraut. Æfingarnar eru ætlaðar 16 ára og eldri.
Hvetjum alla til að mæta vel á allar æfingar og leggja sig alla fram á þeim vegna þess að æfingin skapar meistarann en umfram allt að hafa gaman, hitta vini og kunningja og skemmta öðrum.
Kveðja Nes 17.12.2014 17:54
Gleðileg jól og gæfuríkt nýtt ár Um leið og stjórn og starfsfólk ÍF óskar þér gleðilegra jóla og gæfuríks nýs ár viljum við þakka ómetanlegt samstarf og stuðning við starf ÍF
Boð á Nýárssundmót ÍF 2015 Íþróttasamband fatlaðra býður yður/ykkur að vera viðstadda/viðstöddum hið árlega Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga sem fram fer í Laugardalslaug laugardaginn 3. janúar 2015 og hefst kl. 15.00. 15.12.2014 13:17Jólafrí NES fer í jólafrí eftir næsta föstudag og verður smá skemmtiþema þessa vikuna í flestum greinum, pizza verður í boði á eða eftir æfingu í dag mánudag í frjálsum, á þriðjudag í garpasundi, á miðvikudag í boccia og koma líka gestir frá Akranesi og svo á föstudag í fótbolta. Er þetta ætlað þeim iðkendum sem hafa verið að æfa þessar greinar í vetur. Í sundinu er svo jólasundmót og pizza 29 desember þar sem koma gestir frá öðrum félögum. Nes mun svo hefja starfsemi á nýju ári 5 janúar. Takk fyrir veturinn og vonandi sjáumst við sem flest aftur á nýju ári 15.12.2014 10:17Jólaball Kæru Nesarar Skemmtunin hefst kl. 14:00 og munum við eiga skemmtilega stund saman til kl. 16:00. Jólasveinar koma í heimsókn, dansa með okkur í kringum jólatréð og hjálpa okkur við að syngja jólalögin og svo mun Már Gunnarsson ásamt Jóhönnu Ruth einnig flytja frumsamin lög eftir sjálfan sig. Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta. 01.12.2014 07:36Framkvæmdarstjóri hjá Nes
Stjórn Nes hefur ákveðið að ráða framkvæmdarstjóra til reynslu í 6 mánuði. Um hlutastarf er að ræða og mun framkvæmdarstjórinn sjá um daglegan rekstur og aðstoða stjórn við að halda áfram frábærri starfsemi Nes. Nes hefur stækkað mikið undan farin ár og er svo komið að vinnan í kringum rekstur Nes er orðin talsverður og ekki raunhæft að reka félagið lengur á eingöngu sjálfboðavinnu. Við teljum að Nes hafi fengið frábæran einstakling í þessari stöðu, sem hefur mikinn áhuga, reynslu og metnað. Hinn nýráðni framkvæmdarstjóri heitir Íris Jónsdóttir og er búsett í Keflavík. Hún hefur mikla reynslu af að vinna með fólki og hefur komið að margvíslegum rekstri sem er frábær blanda fyrir Nes. Í desember mun Íris mæta á æfingar og jólamót Nes og kynna sér starfsemina og hitta þjálfara og iðkendur og eru allir beðnir um að taka vel á móti henni. Kveðja 15.11.2014 17:29Skilaboð frá ÍF
Íslandsmót ÍþróttasambandS fatlaðra í boccia, borðtennis, frjálsum íþróttum og lyftingum fer fram í Hafnarfirði dagana 10.-12. apríl 2015. Af óviðráðanlegum orsökum er ekki hægt að halda Íslandsmótið í sundi sömu helgina.
Nánar verður auglýst síðar hvenær Íslandsmótið í sundi muni fara fram og hvar en ráðgert er að það verði í marsmánuði á höfuðborgarsvæðinu.
Kveðja/ Regards Jón Björn Ólafsson Þjónustu- og íþróttafulltrúi ÍF Sports Director NPC Iceland/ SO Iceland Tel: +354 5144080 Mobile: +354 8681061 ÍF – Twitter - @Fatladir
Flettingar í dag: 1427 Gestir í dag: 194 Flettingar í gær: 428 Gestir í gær: 78 Samtals flettingar: 212207 Samtals gestir: 29239 Tölur uppfærðar: 26.11.2024 12:22:52 |
Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Nafn: Íþróttafélagið NESTölvupóstfang: nes.stjorn@gmail.comAfmælisdagur: 17 nóvember 1991Staðsetning: Suðurnes, ÍslandÖnnur vefsíða: https://www.facebook.com/ibrottafelagid.nes.1Um: Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðningTenglar
Eldra efni
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is