Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes |
|
Færslur: 2015 Janúar16.01.2015 11:57Styrktarsjóður Nes og Skötumessunar. Opnað hefur verið fyrir umsóknir!!!Stjórn Nes vill minna á "Styrktarsjóð Nes og Skötumessunar" og benda þeim iðkendum á sem eru að fara á Special Olympics í LA núna í sumar 2015 að þeir geta sótt um styrk fyrir 10.febrúar´15, í þennan sjóð vegna þessa verkefnis. Endilega skoðið þetta vel með ykkar aðstandendum og sækið um ef þið viljið. Umsókn ásamt fylgigögnum skal senda rafrænt til: nes.stjorn@gmail.com fyrir 10.febrúar ´15 næstkomandi. http://nessport.123.is/files/
Skrifað af Stjórn Nes 04.01.2015 07:40Gleðilegt ár allir Nesarar nær og fjær og takk fyrir það liðna.
Æfingar Nes árið 2015 byrja á eftirfarandi tímum:
Frjálsar byrja mánudaginn 5. janúar kl. 17:15-18:15 í Heiðarskóla og eldri mæta kl. 18:15-19:15.
Knattspyrnuæfingar byrja þriðjudaginn 6. janúar kl. 20:30 í Reykjaneshöllinni. Hvetjum sem flesta til að mæta enda er spennandi verkefni framundan.
Garpasundið byrjar þriðjudaginn 6. janúar kl. 18:15-19:15 í Heiðarskóla. Hvetjum alla sem vilja stunda holla hreyfingu í vatni til að mæta. Margt skemmtilegt framundan.
Sundið byrjar með hefðbundnu sniði mánudaginn 5. janúar kl. 19:00-20:00 í Vatnaveröld.
Boccia byrjar með hefðbundnu sniði miðvikudaginn 7. janúar kl. 18:15-20:15 í Heiðarskóla.
Miðvikudaginn 7. janúar kl. 17:15-18:15 mun Nes bjóða öllum iðkendum undir 16 ára að mæta í íþróttaskóla í Heiðarskóla en í þessum tímum verður boðið upp á hinar og þessar skemmtilegar íþróttaþrautir.
Fimmtudaginn 8. janúar kl.18:00-19:00 verður haldið áfram með lyftingarnar eins og verið hefur í íþróttahúsinu á Sunnubraut. Æfingarnar eru ætlaðar 16 ára og eldri.
Hvetjum alla til að mæta vel á allar æfingar og leggja sig alla fram á þeim vegna þess að æfingin skapar meistarann en umfram allt að hafa gaman, hitta vini og kunningja og skemmta öðrum.
Kveðja Nes
Flettingar í dag: 1427 Gestir í dag: 194 Flettingar í gær: 428 Gestir í gær: 78 Samtals flettingar: 212207 Samtals gestir: 29239 Tölur uppfærðar: 26.11.2024 12:22:52 |
Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Nafn: Íþróttafélagið NESTölvupóstfang: nes.stjorn@gmail.comAfmælisdagur: 17 nóvember 1991Staðsetning: Suðurnes, ÍslandÖnnur vefsíða: https://www.facebook.com/ibrottafelagid.nes.1Um: Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðningTenglar
Eldra efni
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is