Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum

Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes

Færslur: 2012 Janúar

31.01.2012 11:34

Æfingar þriðjudag 31.janúar

SUND YNGRI : kl 17:15 - 18:15

GARPASUND: kl 18:15 - 19:15

Sjáumst hress og kát :)

28.01.2012 21:07

íþróttamaður vikunnar 28.janúar.



Nafn:  Ástrós María Bjarnadóttir.

Gælunafn:   Hef ekkert gælunafn.

Aldur:   12 ára.

Uppáhaldsmynd:  Hanna Montana the movie.

Uppáhaldsmatur:  Plokkfiskur.

Uppáhaldsleikari:   Hanna Montana Miley Cyrus.

Uppáhaldslag :   Öll með Miley Cyrus.

Uppáhaldstónlist:   Popp og Rokk.

Tveir kostir og einn galli:   Góð í að synda og passa börn, ekki góð í að vakna á morgnana.

Hvern lítur þú upp til:   Mömmu.

Hvað syngur þú í sturtu:   Syng bara í hljóði :)

Besta Íþróttafélagið:   NES.

Hvað æfir þú:   Sund og frjálsar.

Hvað ætlar þú að verða er þú verður stór:   Leikskólakennari,gangavörður,heimilisfræðikennari,sundkennari,hjúkka og vinna í fiski hjá afa.

Hvað langar þig mest í:   Fartölvu,sjónvarp,snertiskjásíma og myndavél.

Þetta er hún Ástrós okkar og þökkum við henni fyrir frábær svör.
Haltu áfram að vera svona glöð og kát og alltaf með bros á vör :)


27.01.2012 11:17

Nýr tími í fótboltanum

Nýr tími á fótboltaæfingum á föstudögum :) Nú erum við kl 20:30 - 21:20 í Reykjaneshöllinni auðvitað :)

Þá eru tímarnir okkar svona:

Miðvikudagar:  21:30 - 22:20

Föstudagar:  20:30 - 21:20

Og auðvitað erum við alltaf í Reykjaneshöllinni :)

26.01.2012 12:33

Æfingar falla niður.

Æfingar falla niður í dag fimmtudaginn 26.janúar vegna veðurs og færðar. Við sjáumst bara hress og kát á næstu æfingu.

kv Ingi Þór

25.01.2012 14:43

Íslenski hesturinn.

Miðvikudagur 25. janúar 2012 10:44

Íslenski hesturinn og fólk með fötlun

Íþróttasamband fatlaðra og Hestamannafélagið Hörður, Mosfellsbæ, standa fyrir ráðstefnu um hestamennsku fyrir fólk með fötlun laugardaginn 11.febrúar 2012 kl. 10.00 - 16.00.

Íslenski hesturinn hefur reynst vel við þjálfun og endurhæfingu fólks með fötlun. Hestaíþróttir eru keppnisgrein á ólympíumótum fatlaðra og á alþjóðaleikum Special Olympics og á Íslandi er verið að þróa keppnisform fyrir fólk með fötlun.

Markhópur ráðstefnu eru þeir  sem unnið hafa að þessum málum og aðrir sem áhuga hafa

10.00 - 12.00  Félagsheimili Hestamannafélagsins Harðar, Mosfellsbæ

10.00 - 10.15      Kynning á verkefnum starfshóps um þessi mál og  dagskrá námskeiðs 
Anna K Vilhjálmsdóttir, frkvstj. Fræðslu og útbreiðslusviðs ÍF

10.15. - 10.35.    Kynning á sjúkraþjálfun á hestbaki   
  Guðbjörg Eggertsdóttir og Þorbjörg Guðlaugsdóttir, sjúkraþjálfarar Æfingastöðvar SLF    

10.35. -  11.00.    Kynning á starfi fyrir fatlaða innan Hestamannafélagsins Harðar   
Auður Sigurðardóttir, formaður fræðslunefndar fatlaðra
Kynning á leiðtoganámskeiðum 
Þórhildur Þórhallsdóttir, Hestamennt

11.00 - 11.20.      Kynning á knapamerkjakerfi.                                             
Sigrún Sigurðardóttir, reiðkennari
 
11.20. -11.40.     Kynning á hlutverki hestsins & félagslegur þáttur             
Ásta Pétursdóttir, geðhjúkrunarfræðingur

11.40. - 12.00.    Spurningar og umræður
12.00 - 13.00       Hádegisverður

13.00 - 15.000     Reiðhöll Hestamannafélagsins Harðar 

Sjúkraþjálfun á hestbaki: Stutt kynning
Kynning á keppnisfyrirkomulagi  Helstu atriði kynnt
 
15.0 - 16.00
       Lok námskeiðs og samantekt

Þátttökugjald er kr. 3.000. -   Innifalið er hádegisverður og kaffi.

Vinsamlega staðfestið skráningu fyrir þriðjudag 7 febrúar 2012 í netfang;
annak@isisport.is   Íþróttasamband fatlaðra
audurs@gmail.com Hestamannafélagið Hörður

25.01.2012 12:39

Fjáraflanir.

Nú fara okkar frábæru NES-arar að setja af stað fjáraflanir við ætlum að reyna að vera með þó nokkra fjölbreytni í vörum og vonum við að þið sjáið ykkur fært að styrkja okkur :) Við munum byrja á að hjálpa okkar flottu fótboltastrákum sem voru valdnir til að fara út til Danmerkur og Írlands í sumar. Setjum hér inn um leið og við ákveðum hver verður fyrsta fjáröflunin :)

24.01.2012 21:56

Gleðifréttir.

Gaman að segja frá því að 7 strákar frá NES hafa verið valdnir til að fara út með fótboltaliðum í sumar.
Farið verður til Danmerkur og Írlands og fara 3 til Danmerkur og 4 til Írlands.

Þetta eru :

Danmörk:
Vilhjálmur ( Villi )
Eðvarð ( Eddi )
Ari Ægis.

Írland:

Sigurður ( Siggi G )
Guðmundur ( Gummi Markúsar )
Jakob Gunnar
Jósef ( Jobbi )

Til hamingju strákar með að hafa verið valdnir fyrir hönd NES.

24.01.2012 14:30

Þriðjudagurinn 24.janúar.

Halló halló :)

Sundæfing yngri kl 17:15 - 18:15 :)
 
GARPASUND HEIÐARSKÓLA kl 18:15 - 19:15 :)

Sjáumst hress og kát :)

23.01.2012 22:30

Ótitlað

Flottar æfingar að baki hjá NES þennan fallega mánudag og vikan bara rétt að byrja. Nemendur úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja mættu á svæðið og eru þjálfarar búnir að raða þeim niður á allar æfingar, afar ánægulegt. Þessir flottu nemendur verða iðkendum hjá NES til halds og trausts á æfingum næstu mánuði, flott mál. Það var afar ánægjulegt að sjá hve margir iðkendur mættu á sundæfingu á Sunnubraut, Vatnaveröldina. Gaman að segja frá því að sundið er að taka alveg svakalega kipp hjá okkur sem er bara gott mál. Viljum þó minna á að það er alltaf pláss fyrir fleiri að koma á ALLAR ÆFINGAR, yngri sem eldri. Það er svo gaman að hitta ykkur flotta fólk.

23.01.2012 10:41

Ný vika :)

Jæja ný vika byrjuð og þá byrja nýjar æfingar :)

FRJÁLSAR YNGRI KL 17:15 - 18:15
FRJÁLSAR ELDRI KL 18:15 - 19:15


SUND ELDRI KL 19:00 - 20-00 SUNNUBRAUT.

Við áttum flotta sundmenn/konu á Reykjavíkurmótinu um helgina :) Guðmundur, Siggi G og Ástrós voru að keppa fyrir hönd NES :) Guðmunudur og Ástrós komust á verðlaunapall og ÖLL BÆTTU þau sig í sínum greinum :) Til hamingju með þennan frábæra árangur :)

Sjáumst hress og kát á æfingum.

Það eru komnar nýjar myndir inn.

22.01.2012 16:09

Ótitlað

Þá er sundmótið "Reykjavík International Games 2012" lokið, sem var núna alla helgina. NES átti þrjá þátttakendur á mótinu;Sigurð Guðmundss, Guðmund Inga og Ástrósu Maríu. Þau stóðu sig öll rosa vel og voru öll að bæta sig í tíma og náðu að koma heim með tvo verðlaunapeninga. Við megum vera mikið stolt af þessum flottu sundgörpum. Til hamingju krakkar með flottan árangur!!!  ÁFRAM NES :)

19.01.2012 22:02

Íþróttamaður vikunnar.



Íþróttamaður vikunnar 19.janúar 2012

Nafn:  Lára Ingimundardóttir.

Aldur:  40. ára.

Núverandi skóli/vinna:  Kaffitár.

Hvaða íþrótt æfir þú:  Boccía og Frjálsar.

Hvert er uppáhalds lagið þitt:  Februari Josh Groban.

Hver er uppáhalds bíómyndin þín:
Superman ( allar).

Hvert langar þig að ferðast:  Spánar Alicante.

Hvað langar þig mest í:  Kærasta á hvítum hesti.

Tveir kostir og einn galli:  Ákveðin, Skemmtileg, en get verið erfið.

Helsta fyrirmynd:  Pabbi og systir mín Helga.

Hvaða lag syngur þú í sturtu:  Ýmsir flytjendur.

Hvaða tónlist hlustar þú á:  Hipp Hopp og Kirkjutónlist.

Lélegasti sjónvarpsþáttur :  Clown á Ruv.

Uppáhaldsíþróttafélag:  Njarðvík.

Uppáhaldsmaturinn:  Hangikjöt og soðinn fiskur.

Lífsmottó:  Finnst gott að fólk líður vel í kringum mig :)


Þökkum við Láru fyrir að vera svona flott og frábær NES-ari.



18.01.2012 21:47

Ótitlað

Loksins komnar inn myndir af NÝÁRSMÓTINU sem ÍF hélt þann 8.janúar síðastliðinn (sjá myndaalbúm). Þetta var barna- og unglingamót, fyrir 17 ára og yngri, sem er haldið alltaf árlega í Laugardalslauginni. Í ár sló NES öll fyrri mætingarmet því 11 krakkar mættu galvösk til leiks og kepptu fyrir hönd NES. Þessir flottu sundgarpar stóðu sig öll rosalega vel og voru mörg hver að stíga sín fyrstu spor í því að keppa á svona stóru móti. Svo þetta var stór stund. Við hjá NES megum vera mjög hreykin af þessum flottu krökkum sem eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér. ÁFRAM NES

18.01.2012 11:52

ENGIN FÓTBOLTAÆFING Í KVÖLD.

SÆL ÖLL.

ENGIN FÓTBOLTAÆFING VERÐUR Í KVÖLD 18.JANÚAR ÞAR SEM SPÁIN ER EKKI GÓÐ. EN VIÐ SJÁUMST BARA HRESS Á FÖSTUDAGINN Í STAÐIN.

18.01.2012 10:13

ÆFINGAR FALLA NIÐUR Í DAG 18 .JANÚAR.

ATHUGIÐ - ATHUGIÐ.

ÞAR SEM VEÐURSPÁ ER SLÆM FYRIR DAGINN Í DAG MUNU BOCCÍAÆFINGAR FALLA NIÐUR HJÁ ÖLLUM FLOKKUM Í DAG 18.JANÚAR.

SEM SÉ ENGAR ÆFINGAR Í BOCCÍA Í DAG.
Flettingar í dag: 24
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 50
Gestir í gær: 41
Samtals flettingar: 187317
Samtals gestir: 22586
Tölur uppfærðar: 7.5.2024 04:25:37

Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum

Nafn:

Íþróttafélagið NES

Afmælisdagur:

17 nóvember 1991

Staðsetning:

Suðurnes, Ísland

Um:

Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðning

Tenglar