Nes aftur orðið að fyrirmyndarfélagi
Sá góði viðburður gerðist á lokahófi Nes í gær að Nes hlaut gæðaviðurkenningu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands fyrir íþróttastarf og rétt til að kalla sig Fyrirmyndarfélag ÍSÍ til næstu fjögurra ára. Viðurkenningin var fyrst afhent Nes 11. maí 2004. Á myndinni sést þegar Guðmundur Sigurðsson, formaður Nes veitir viðurkenningunni viðtöku frá Sigríði Jónsdóttur úr framkvæmdastjórn ÍSÍ.