Kæru NES-arar nær sem fjær!!! Nú er komið að því .....
....NES ætlar að halda HALLOWEEN-diskótek fyrir ykkur fimmtudagskvöldið 31.október næstkomandi í Félagsmiðstöðinni Eldingu í Garði, Suðurnesjum. Húsið opnar kl.19.30 og verður opið til kl.21.30. Frítt er á diskótekið en sjoppa verður á staðnum. Gaman væri ef NES-arar kæmu í búning á diskótekið en það er alls ekki skylda. Hvetjum alla að mæta að sýna sig og sjá aðra.
Sjáumst hress á fimmtudagskvöldið 31.október næstkomandi.
Kveðja Stjórn NES