Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum

Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes

22.06.2013 12:37

Landsmót UMFÍ

Sælir allir iðkendur Nes og aðstandendur

 

Eins og þið vonandi vitið verður landsmót UMFÍ haldið á Selfossi dagana 4.-7. júlí í sumar. Það verður að sjálfsögðu keppni fatlaðra íþróttamanna í frjálsum íþróttum, sundi og boccia. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu UMFÍ sem er umfi.is.  Á landsmótum er kjörið tækifæri fyrir fólk að keppa fyrir framan marga áhorfendur og að taka þátt í sameiginlegu keppnisliði héraðssambanda og íþróttabandalaga. Sumir telja ekki hægt að keppa á landsmóti því æfingar séu ekki á sumrin í ákveðnum greinum en slíkt hefur ekki stoppað ófatlaða íþróttamenn sem mæta tugum saman með sínu héraðssambandi á landsmótin.  Með þáttöku á mótinu er verið að reyna að auka veg fatlaðra íþróttamanna á þeim vettvangi og því hvet ég alla Nesara til að skrá sig og mæta.  Mótshaldið er með þeim hætti að keppt er í einum aldursflokki óháð aldri.  Ekki er neitt aldurstakmark í greinar á mótinu, nema þess sé sérstaklega getið í keppnisreglum viðkomandi sérsambands.  Þetta á við í skotfimi.  Í öðrum greinum verða þjálfarar og foreldrar að meta hvort krakkar og unglingar geti keppt.  

 

MIKILVÆGT – SKRÁNINGU LÍKUR Á HÁDEGI NÆSTA MÁNUDAG (mánudaginn 24. júní).  Nesarar skrá sig hjá Keflavík, farið inn á einar@keflavik.is og skráið hvað þið ætlið að keppa í og hvort verður keppt í flokki hreyfihamlaðra eða þroskahamlaðra.  Einnig hægt að hafa samband við Einar Haraldsson, formann Keflavíkur, sem sér um skráninguna í síma 421-3044 og 897-5204.  Keflavík er Ungmennafélag og Nesarar munu keppa undir merkjum Keflavíkur.  Keflavík sér um að greiða keppnisgjaldið fyrir keppendur (líka Nesara) en keppendur verða þar með að kaupa keppnispeysu frá Keflavík sem kostar 6000 kr ( er niðurgreidd um 2000 kr).

 

Í boccia er hægt að skrá sig bæði í einstaklings- og liðakeppni og má vera blandað í liði – mamma og pabbi, afi og amma og systkini sem dæmi.

 

Í frjálsum er hægt að skrá sig í 100 og 400 m hlaupi og hjólastólaakstri, langstökki með atrennu, kúluvarpi og spjótkasti.

 

Í sundi er keppt í 50m bringu, 50m skrið, 50m flug, 50m bak, 100m bringu, 100m skrið, 100m bak og 100m fjórsundi.

 

Keflavík mætir með 40-50 manna hóp á Selfoss og verður búið að afmarka svæði fyrir Keflavíkinga á tjaldsvæðinu.  Guðmundur Sigurðsson, formaður Nes, verður fararstjóri og tjaldbúðastjóri.

 

Með von um að við sjáumst í júlí á Selfossi

Bestu kveðjur

Stjórn Nes.

Flettingar í dag: 1761
Gestir í dag: 335
Flettingar í gær: 428
Gestir í gær: 78
Samtals flettingar: 212541
Samtals gestir: 29380
Tölur uppfærðar: 26.11.2024 14:38:43

Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum

Nafn:

Íþróttafélagið NES

Afmælisdagur:

17 nóvember 1991

Staðsetning:

Suðurnes, Ísland

Um:

Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðning

Tenglar