Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes |
|
Markmið og tilgangur NES
NES hefur það að markmiði að efla gott íþróttastarf fyrir fatlaða, gefa fötluðum
tækifæri á að iðka íþróttir á jafnréttisgrundvelli, að mæta einstaklingum þar sem
þeir eru og þeir fái að njóta sín.
Tilgangur NES er að bjóða uppá íþróttir fyrir alla, huga að andlegri og líkamlegri
vellíðan iðkenda, stuðla að heilbrigði iðkenda. Einstaklingurinn fái að njóta sín,
jafnt í liða og einstaklings íþróttum.
Boðskapur NES er að það sé réttur allra að stunda íþróttir, allir fái tækifæri sama
hver fötlun þeirra sé. NES vill auka færni einstaklinga til að njóta betra lífs með
þátttöku í liða og félagsstarfi.
Það sem NES stendur fyrir er jöfn tækifæri, heilsa, heilbrigði, félagsskapur, góð
þjálfun, árangur og metnaður. Við viljum að iðkendur og almenningur tengi þessi
hugtök við félagið og sig sjálfa, að iðkendur vilji taka þátt á sínum forsendum og
finni sinn stað innan félagsins hvort sem það sé vegna félagsskapar, vellíðunar
eða árangurs.
NES er fyrir alla einstaklinga á öllum aldri sem eiga við einhvers konar fötlun eða
röskun að stríða. Flettingar í dag: 1539 Gestir í dag: 249 Flettingar í gær: 428 Gestir í gær: 78 Samtals flettingar: 212319 Samtals gestir: 29294 Tölur uppfærðar: 26.11.2024 12:44:14 |
Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Nafn: Íþróttafélagið NESTölvupóstfang: nes.stjorn@gmail.comAfmælisdagur: 17 nóvember 1991Staðsetning: Suðurnes, ÍslandÖnnur vefsíða: https://www.facebook.com/ibrottafelagid.nes.1Um: Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðningTenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is