Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes |
|
Keppni
Keppni skal miðast við aldur og þroska og að hún sé hvatning til ástundunar og framfara
svo auka megi líkur á að ná settum þjálfunarmarkmiðum.
8 ára og yngri: Keppni í þessum flokki er ekki markmið í sjálfu sér. Hún fer fram á innanfélagsmótum og mótum þar sem félagar úr nágrannafélögum keppa. Áhersla er lögð á að allir fái tækifæri til að vera með og enginn er útilokaður vegna getu. Leikur og leikgleði ræður ríkjum.
9-10 ára. Keppni fer fram á innanfélagsmótum og mótum þar sem félagar úr nágrannafélögum keppa. Áhersla er lögð á liðakeppni og allir fá tækifæri til að vera með óháð getu.
11-12 ára. Keppni fer fram á félags, héraðs, landshluta- og landsvísu. Áhersla er lögð á liðakeppni og allir fá tækifæri til að vera með óháð getu.
13-14 ára. Keppni fer fram á félags,héraðs,landshluta-og landsvísu og hugsanlega erlendis. Liðakeppni er í fyrirrúmi en aukin áhersla miðað við fyrri aldursskeið á keppni milli einstaklinga.
15 ára og eldri. Keppni fer fram á félags,héraðs,landshluta- og landsvísu og hugsanlega erlendis. Árangur í keppni orðinn markmið sem stefnt er að og þjálfunin miðast við hvort sem um lið eða einstakling er að ræða. Flettingar í dag: 1427 Gestir í dag: 194 Flettingar í gær: 428 Gestir í gær: 78 Samtals flettingar: 212207 Samtals gestir: 29239 Tölur uppfærðar: 26.11.2024 12:22:52 |
Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Nafn: Íþróttafélagið NESTölvupóstfang: nes.stjorn@gmail.comAfmælisdagur: 17 nóvember 1991Staðsetning: Suðurnes, ÍslandÖnnur vefsíða: https://www.facebook.com/ibrottafelagid.nes.1Um: Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðningTenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is