Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes |
|
Saga NES
Nes Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum var stofnað 17. nóvember 1991. Mikill áhugi var fyrir stofnun félagsins og voru aðal hvatamenn að stofnun félagsins Þroskahjálp á Suðurnesjum, Sjálfsbjörg á Suðurnesjum og áhugamenn um íþróttir fatlaðs fólks. Með árunum hefur Nes vaxið og dafnað og blómstrar nú sem aldrei fyrr með yfir 70 iðkendum. Síðastliðið haust, 2012, fagnaði Nes 20 ára starfsafmæli. Í tilefni þeirra tímamóta var bæjarstjórnum allra sveitafélaga á Suðurnesjum boðið að koma og taka þátt í Bocciamóti. Mikil gleði var hjá okkar iðkendum á þessum tímamótum, stór stund. Mikil uppbygging hefur verið í gangi undanfarin ár og margar nýjar áherslur hafa litið dagsins ljós sem hafa lofað góðu fyrir starfsemina og eru spennandi tímar framundan hjá félaginu. Þar má helst nefna þau fjölmörgu mót sem iðkendur hafa tekið þátt í og munu taka þátt í og þau mót sem NES mun halda, æfingabúðir, spennandi fjáraflanir og hinir skemmtilegu mánaðarlegu hittinga halda sínu sessi líkt og áður. Þar hittast iðkendur, aðstandendur, þjálfarar og stjórn og eiga góða stund saman. Hjá félaginu í dag eru um 70 iðkendur á aldrinum 6 til 60 ára. NES býður uppá æfingar fimm daga vikunnar fyrir iðkendur sína þar af eru tvær fótboltaæfingar á viku fyrir eldri, þrjár sundæfingar á viku fyrir eldri hóp í sundi, tvær sundæfingar á viku fyrir yngri hópinn, ein æfing á viku fyrir þá sem æfa Garpasund, ein æfing á viku fyrir eldri í boccia, ein æfing á viku fyrir yngri í boccia, ein æfing á viku fyrir eldri í frjálsum íþróttum og ein æfing á viku fyrir yngri í frjálsum íþróttum. Ásamt þessu býður Nes uppá æfingar í lyftingum. Eins og sjá má er fjöldi æfinga mikill og höfum við verið svo heppin að fá í okkar raðir flotta þjálfara sem skipta með sér ofantöldum íþróttagreinum. Þjálfarar NES eru fagfólk fram í fingurgóma. Flettingar í dag: 1539 Gestir í dag: 249 Flettingar í gær: 428 Gestir í gær: 78 Samtals flettingar: 212319 Samtals gestir: 29294 Tölur uppfærðar: 26.11.2024 12:44:14 |
Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Nafn: Íþróttafélagið NESTölvupóstfang: nes.stjorn@gmail.comAfmælisdagur: 17 nóvember 1991Staðsetning: Suðurnes, ÍslandÖnnur vefsíða: https://www.facebook.com/ibrottafelagid.nes.1Um: Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðningTenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is