Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes |
|||||||
Færslur: 2015 Mars30.03.2015 14:17Tímasetningar Íslandsmótsins og lokahófið í Gullhömrum
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í boccia, borðtennis, frjálsum íþróttum og lyftingum fer fram helgina 10.-12. apríl næstkomandi. Keppni í boccia, frjálsum og lyftingum fer fram í Kaplakrika í Hafnarfirði en keppni í borðtennis fer fram í Íþróttahúsi ÍFR að Hátúni í Reykjavík. Lokahóf Íslandsmótsins fer svo fram í Gullhömrum í Grafarvogi þar sem húsið verður opnað kl. 18:00 sunnudagskvöldið 12. apríl.
Tímaseðill Íslandsmótsins
Föstudagur 10. apríl Frjálsar íþróttir – Kaplakriki – upphitun kl. 18 og keppni kl. 19
Laugardagur 11. apríl Boccia – Kaplakriki – 9.30 fararstjórafundur – 10:30 mótssetning – 11:00 keppni hefst Lyftingar – Kaplakriki – 11:00 vigtun – 13:00 keppni hefst Borðtennis – Íþróttahús ÍFR – keppni hefst kl. 11:00
Sunnudagur 12. apríl Boccia 11:00-15:00 Lokahóf ÍF í Gullhömrum í Grafarvogi – húsið verður opnað kl. 11:00.
Lokahófið 12. apríl Eins og áður segir verður húsið opnað kl. 18:00 og borðhald hefst kl. 19. Verð á mann er kr. 7000. Veislustjórar verða þeir Ingvar Valgeirsson og Hlynur Ben.
Matseðill
Forréttur Asparssúpa með nýbökuðu brauði
Aðalréttur Hægeldað nautafillet með kartöflubátum,grænmeti og rjómalagaðri piparsósu.
Eftirréttur Sukkulaðifrauð með ferskum berjum og vanillurjóma.
Kveðja/ Regards Jón Björn Ólafsson Þjónustu- og íþróttafulltrúi ÍF Sports Director NPC Iceland/ SO Iceland 24.03.2015 14:13
23.03.2015 10:29
23.03.2015 10:23Páskafrí Nes
Boccia fer í páskafrí frá 25. mars. til 8. apríl.... Kveðja 22.03.2015 22:09Aðalfundur
Íþróttafélagsins Nes 30. mars 2015, Verður í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ, Sólvallagötu 6, kl. 20:00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
Stjórn Nes 13.03.2015 13:24Áríðandi skilaboð vegna Íslandsmóts ÍF í sundi
Kæru forráðamenn og þjálfarar,
Vegna Íslandsmóts ÍF í sundi sem fram fer í Laugardalslaug n.k. laugardag og sunnudag biðjum við fólk vinsamlegast að fylgjanst grannt með verðurspá og ekki taka áhættu í ferðum milli staða. Varðandi laugardaginn þar sem upphitun hefst 13:00 og mótseting 14:00 mælum við með að fólk að leggji snemma af stað þar sem samkvæmt nýjustu spám er alls ekkert ferðaveður um hádegisbilið.
Því miður er ekki hægt að fresta mótinu sem er með IPC gildingu sem sækja þarf um a.m.k. sex vikum fyrir mót til að það teljist löglegt.
Að lokum hvetjum við ykkur enn og aftur til að fylgjast gaumgæfilega með veðurfréttum og ekki halda af stað fyrr en að vel athuguðu máli. Sé frekari upplýsinga óskað þá vinsamlegast hafið samband við starfsmenn ÍF í símum 8962115 Ólafur, 8975523 Anna Karólína og 8681061 Jón Björn.
Kveðja/ Regards Jón Björn Ólafsson Þjónustu- og íþróttafulltrúi ÍF Sports Director NPC Iceland/ SO Iceland 13.03.2015 06:14Sniglarnir styrkja Nes 05.03.2015 21:59Styrktarsjóður Nes og Skötumessunnar. Á fundi stjórnar í kvöld 05.03.2015 var i fyrsta sinn úthlutað úr styrktarsjóði Nes og Skötumessunnar Styrktarsjóður Nes og Skötumessunnar var stofnaður árið 2014 og hefur skírskotun til Skötumessu að sumri sem haldin er í Garði í júlí ár hvert. Styrktarsjóðnum er ætlað að styðja við Nesara sem eru að fara að keppa erlendis á vegum Íþróttasambands fatlaðra
Flettingar í dag: 1539 Gestir í dag: 249 Flettingar í gær: 428 Gestir í gær: 78 Samtals flettingar: 212319 Samtals gestir: 29294 Tölur uppfærðar: 26.11.2024 12:44:14 |
Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Nafn: Íþróttafélagið NESTölvupóstfang: nes.stjorn@gmail.comAfmælisdagur: 17 nóvember 1991Staðsetning: Suðurnes, ÍslandÖnnur vefsíða: https://www.facebook.com/ibrottafelagid.nes.1Um: Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðningTenglar
Eldra efni
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is