Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes |
|
Færslur: 2013 September17.09.2013 14:25IPC vottun á Erlingsmótinu í árSent frá ÍF til upplýsinga:
Sæl öllsömul
Ykkur til upplýsinga þá er IPC vottun á Erlingsmótinu í ár sem þýðir að árangur sundmanna mun skrást á heimslista. Það á við sundmenn sem eru virkir inni í íþróttamannakerfi IPC og eru það jafnan sundmenn sem tengjast landsliðsverkefnum. Vottað mót þýðir að tímar á mótinu gilda sem lágmörk fyrir stærri mót erlendis. 17.09.2013 14:15Ellefu sundmenn valdir fyrir NorðurlandamótiðEllefu sundmenn valdir fyrir NorðurlandamótiðNorðurlandamót fatlaðra í sundi fer fram í Svíþjóð dagana 1.-3. nóvember næstkomandi og hafa 11 íslenskir sundmenn verið valdir til þátttöku í mótinu. Íslenski hópurinn sem keppir á NM: Flokkur þroskahamlaðra Jón Margeir Sverrisson S14 Fjölnir Davíð Þór Torfason S14 Fjölni Kolbrúna Alda Stefánsdóttir S14 Fjörður Aníta Hrafnsdóttir S14 Fjörður Flokkur hreyfihamlaðra Hjörtur Ingvarsson S6 Fjörður Thelma Björnsdóttir S6 ÍFR Karen Axelsdóttir S2 ÖSP Marinó Adolfsson S8 ÍFR Guðmundur Hermannsson S9 ÍFR Flokkur sjónskertra Sandra Gunnarsdóttir S13 Fjölnir Már Gunnarsson S12 Nes 04.09.2013 12:58Arnar Helgi hjólastólakappi skorar á þig að vera meðKynningarverkefni Íþróttasambands fatlaðra „Vertu með“ heldur áfram og að þessu sinni er það Arnar Helgi Lárusson sem skorar á fólk að vera með. Arnar er frjálsíþróttamaður hjá Nes og er eini Íslendingurinn sem stundar hjólastólakappakstur svo þegar hann segir „Vertu með“ þá meinar hann það! Hvet alla að kynna sér meðfylgjandi myndband:
Flettingar í dag: 1427 Gestir í dag: 194 Flettingar í gær: 428 Gestir í gær: 78 Samtals flettingar: 212207 Samtals gestir: 29239 Tölur uppfærðar: 26.11.2024 12:22:52 |
Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Nafn: Íþróttafélagið NESTölvupóstfang: nes.stjorn@gmail.comAfmælisdagur: 17 nóvember 1991Staðsetning: Suðurnes, ÍslandÖnnur vefsíða: https://www.facebook.com/ibrottafelagid.nes.1Um: Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðningTenglar
Eldra efni
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is