Íþróttafélagið Nes - Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Skráningar á æfingar fara fram á Sportabler.com/shop/nes |
|
Færslur: 2012 Júní11.06.2012 21:18Aðalfundur NES 11.júní 2012Skýrsla stjórnar NES 2011 Ágætu iðkendur, aðstandendur og aðrir velunnarar NES verið velkomin á þennan aðalfund félagsins. Hið 20. starfsár NES hófst eftir kosningu nýrrar stjórnar í maí 2011. Stjórn Íþróttafélagsins NES árið 2011 skipuðu: -Petrína Sigurðardóttir-formaður -Karen Ásta
Friðjónsdóttir-varaformaður -Katrín Ruth
Þorgeirsdóttir-ritari -Ingunn
Rögnvaldsdóttir-gjaldkeri -Bryndís
Heimisdóttir-meðstjórnandi -Lára María
Ingimundardóttir-meðstjórnandi -Gestur Þorsteinsson-meðstjórnandi Ásamt stjórn
hefur verið starfandi foreldraráð sem er stjórn innan handar varðandi
fjáraflanir og ferðir sem farnar eru á vegum félagsins. Hlutverk foreldraráðs
er að tryggja að foreldrar geti með frumkvæði sínu og hugmyndum eflt
íþróttastarfið og haft áhrif á aðstöðu og aðbúnað félagsins. Foreldraráð lýtur
yfirstjórn stjórnar. Fimm foreldrar og tveir til vara eru skipaðir til eins árs
í senn í foreldraráð. Í foreldarráði NES árið 2011 sátu: -Svava Hafstein -Gunnrún -Laufey -Kristinn -Erna -Guðveig Ný stjórn hóf af krafti 20. starfsár félagsins í byrjun september með velsóttum kynningarfundi þar sem ný markmið, áherslur og stefna félagsins var kynnt, þar var m.a skerpt á reglum er varðar mætingar iðkenda á æfingar og þátttökurétti þeirra á mótum, reglur er varðar reykingar og áfengi, greiðslu æfingagjalda svo eitthvað sé nefnt. Markmið félagsins voru m.a. þau að koma Nes meira út í samfélagið (vera sýnileg í samfélaginu), koma Nes aftur á meðal fremstu félaga innan raða ÍF, efla félagsstarf Nes með mismunandi hittingum, finna betri æfingaraðstöðu fyrir fótboltann og sundið hjá eldri. Á þessum kynningarfundi voru einnig kynntir nýir þjálfarar NES en þeir voru Ingi Þór Einarsson kennari ráðinn til að sjá um sund yngri og eldri, Stefán Óskar Gíslason þjálfari ráðinn til að sjá um fótboltann, Þorgerður Jóhannsdóttir sjúkraþjálfari ráðin til að sjá um frjálsar og boccia eldri, Arna Arnarsdóttir Þroskaþjálfi ráðin til að sjá um frjálsar yngri og boccia yngri og eldri og Petrína Sigurðardóttir ráðin til að sjá um frjálsar yngri og boccia yngri. Síðar þetta ár bættist við ný grein hjá NES en það var Garpasundið, sem er ætlað fyrir 14 ára og eldri. Þjálfarinn sem var ráðinn í það heitir Birkir Þór Karlsson. Starf íþróttafélagsins NES var öflugt á starfsárinu 2012 sem sést best á þátttöku félaga á æfingum og mótum sem eru haldin af ÍF og NES. Aldrei í sögu NES hefur félagið tekið þátt í jafn mörgum mótum og síðastliðið starfsár. Hjá félaginu æfðu um 70 manns á aldrinum 6 -60 ára, að staðaldri í sundi, fótbolta, frjálsum íþróttum og boccia. Jóhann Rúnar Kristjánsson er sá eini í NES sem æfir borðtennis en hann æfir í Reykjavík vegna aðstöðuleysis á Suðurnesjum. Æfingar hjá Nes eru fimm daga vikunnar og eru þar af tvær æfingar á viku í fótboltanum, bætt var við einni æfingu við á viku hjá yngri og eldri í sundinu og eru þar af leiðandi á æfingum tvisvar sinnum í viku. Frjálsar, boccia og Garpasundið eru með æfingar einu sinni í viku. Það sem hefur einkennt þennan vetur hvað mest er hinn mikli metnaður sem hefur orðið í félaginu. Þjálfarar hafa sýnt mikinn metnað og hvatt sitt fólk áfram og hefur það leitt meðal annars til þess að mikil vakning hefur orðið í félaginu öllu. Í sundhópnum hefur t.d. iðkendum hefur fjölgað um helming sem og í fótboltanum. Í frjálsum og boccia hefur verið ágætis mæting og góður kjarni myndast og æfir af kappi. Garpasundið sem byrjaði um áramótin hefur slegið gjörsamlega í gegn og fjölmargir nýtt sér að fara í sund sem hafa ekki gert það áður. Stjórnin náði sínu markmiði með að finna betri æfingaraðstöðu fyrir sund eldri og fótboltann. Sundið hjá eldri fékk einn tíma á viku í Vatnaveröldinni og einn tíma á viku í sundlaug Akurskóla. Fótboltinn fékk að halda báðar sínar æfingar í Reykjaneshöllinni. Góð æfingaraðstaða skiptir öllu máli og höfum við sem betur fer verið heppin með aðstöðuna fyrir frjálsar og Boccia í sal Heiðarskóla. Eina sem við þurfum að bæta þar er tækjakostur fyrir frjálsar. Mót sem NES tók þátt á starfsárinu voru eftirfarandi: Fótbolti 25.26.maí Knattspyrnuvika Evropa, Fótbolti, Reykjavík 18.september 2011-Special Olympics Íslandsleikar í fótbolta, Reykjavík 26.september 201- Íslandsleikar í Fótbolta. 9.des 2011- Jólamót NES í fótbolta. Þróttur/Vogum, Reynir/sandgerðir, Víðir/Garði og Öspin komu í heimsókn og tóku þátt með NES 17.maí 2012 Íslandsleikar í knattspyrnu í Reykjavík Frjálsar íþróttir. 19.-22.maí 2011-Æfingarbúðir ÍF í frjálsum Laugardalsvelli. 11 júní 2011- Íslandsmót í frjálsum, Laugardalsvelli. 18.september- Íslandsleikir í Frjálsum, Reykjavík. 22.-25. Sept. 2011- Íslandsleikir SO frjálsar, Reykjavík. 31. mars-1. Apríl 2012- Íslandsmót ÍF í frjálsum, laugardalhöll. 9. Júní 2012- Íslandsmót ÍF í frjálsum utanhúss, Laugardalsvelli. Boccia. 25.-27. mars 2011-Íslandsmót ÍF, Hafnarfirði. 7.-9. Okt. 2011- Íslandsmót ÍF í einstaklingskeppni í Boccia, Vestmannaeyjum. 14. Des 2011- .Jólamót Nes fyrir allur aldurshópa. Innanfélagsmót 8. jan. 2012- Lionsmót og fyrirtækjamót í Boccia, Reykjanesbæ. 31. mars-1.apríl 2012- Íslandsmót ÍF, Laugardalshöll. 28. apríl- 1.maí 2012- Hængsmót í Boccia, Akureyri. 11.-13.maí 2012- Norðurlandamót í Boccia, Laugardalshöll. Sund 8.okt. 2011- Erlingsmótið í sundi, Laugardalslauginni. 5.-6.nóv. 2011- Æfingarbúðir ÍF í sundi, Ásvallarlaug. 23.nóv.2011- Íslandsmót í sundi, Laugardalslauginni. 28.des 2011- Jólamót Nes í sundi, Fjörður Íþróttafélag kom í heimsókn og keppti með NES. 8.jan.2012- Nýársmótið í sundi, Laugardalslauginni. 10.-11.mars 2012- Æfingarbúðir ÍF í sundi, Ásvallarlaug. 30.-31.mars 2012- Íslandsmót ÍF í sundi, Laugardalslauginni. 19. Maí 2012- Asparmót í sundi, Laugardalslauginni. 9.júní 2012-Bikarmót íF í sundi, Ásvallarlaug Borðtennis 31.mars-1.apríl 2011-Opna Slóvenska í borðtennismótið í Alaska. 13.-15.maí 2011-Opna Hollenska borðtennismótið í Rotterdam. 21.-23.okt. 2011-Evrópumeistaramótið í borðtennis í Króatíu. 31.mars-1.apríl 2012- Íslandsmót í borðtennis,fór fram í ÍFR húsinu. Sumarið 2011 voru þrír drengir valdir úr Nes til að keppa á Special Olympics í Aþenu þann 25. júní- 4.júlí 2011. Þetta voru þeir Sigurður Guðmundsson,Guðmundur Hreinn Markússon og Jakob Gunnar Lárusson. Sigurður og Guðmundur kepptu í fótbolta og komu heim með silfur. Jakob Gunnar keppti í frjálsum og kom heim með brons. Glæsilegur árangur hjá þessum drengjum. Eins og sjá má af upptalningunni hér að ofan sóttu NES-arar af kappi öll þau mót sem þeim stóðu til boða hvort sem það var á vegum ÍF, Nes eða annarra félaga. Þar stóðu Nes-arar sig með stakri prýði og voru margar medalíurnar sem koma heim í hús. Besta var þó að allir voru að bæta sinn tíma allverulega og hafa gaman af þessu. Mikil metnaður og gleði. Gaman var að fylgjast með hversu margir yngri iðkendur voru að taka þátt á mótum þetta starfsár í víðbót við hina eldri. Sum þeirra voru að stíga sín fyrstu skref að keppa fyrir hönd NES og stóðu sig einstaklega vel. Nes hélt jólamót í fótbolta, Boccia og sundi. Á þessu mótum fengum við góða gesti sem tóku þátt og voru þessi mót vel sótt bæði af iðkendum og aðstandendum og vel lukkuð. Stefnan er að hafa þetta að árvissum atburði. Einstaklingakeppni í boccia var haldinn í Vestmannaeyjum þann 7.-.9. okt 2011 og hafnaði hann Arnar Már Ingibjörnsson frá Nes í 1.sæti, glæsilegur árangur. Viss mót héldu sínu sessi sbr. Lions- og fyrirtækjamótið í Boccia. Það mót heppnaðist mjög vel og var vel sótt. Fyrir hönd Nes þökkum við kærlega fyrir veittan stuðning á því móti. Á Norðurlandamóti í Boccia áttum við tvo fulltrúa, Konráð og Davíð sem stóðu sig vel. Æfingabúðir ÍF héldu sínu striki í Boccia, frjálsum og sundi og sóttu nokkrir Nes-arar þær og stóðu sig með stakri prýði. Það sýnir m.a. vel hversu öflugt íþróttafólk við eigum. Einnig sýndum við það í Íslandsmóti í Boccia, sundi, borðtennis og frjálsum en þar voru Nes-arar að bæta sig vel í tíma, unnu 16 verðlaunapeninga og urðu Nes-arnir Konráð, Arnar Már og Vilhjálmur Íslandsmeistarar í sveitakeppni. Á sama móti í borðtennis var hann Jóhann Rúnar frá NES með 3 gull. Glæsilegur árangur þar. Þess ber að geta að Jóhann heldur til London þann 9. sept. 2012 á Paralympic í London og keppir þar í borðtennis. Við hjá Nes óskum honum góðs gengis og erum afar stolt af honum. Einnig ber að minnast á
það að ÍF hefur valið hvorki meira né minna en átta Nes-ara til að fara keppa
fyrir Íslands hönd á tveimur mótum í sumar. Önnur ferðin er æfingar-og keppnisferð í fótbolta til Limerick á Írlandi og eru Sigurður G., Guðmundur Ingi, Jakob Gunnar,
Guðmundur Markúsar og Jósef að halda utan til að keppa á þessu móti þann
19.-23.júní næstkomandi. Seinna mótið er Special Olympics mót í fótbolta sem
verður haldið í Danmörku þann 28.júní-2.júlí næstkomandi. Frá NES fara Vilhjálmur,
Ari og Eðvarð Sigurjónss. Stefán Óskar Gíslason fótboltaþjálfari okkar í NES
mun fylgja báðum þessum hópum út. Þess ber einnig að geta að í sambandi við bæði
þessi mót hefur orðið mikið og gott samband við íþróttafélagið Ösp og þá
sérstaklega Ólaf eða Olla, eins og hann er gjarnan kallaður, og erum við í
stjórn NES þakklát fyrir það samstarf og sendum Olla okkar bestu þakkir fyrir. Annað
starf Eins og fram hefur
komið fagnaði NES merkum tímamótum þann 17.nóvember síðastliðinn, 20 ára
starfsafmæli. Í tengslum við það bauð NES öllum bæjarstjórnum á Suðurnesjum til
að taka þátt í afmælismóti í Boccia og fagna að móti loknu með iðkendum, þjálfurum, stjórn, aðstandendum og öðrum velunnurum NES með
hefðbundinni afmælisveislu. Allar bæjarstjórnir fyrir utan eina tóku þátt. Mótið
var vel lukkað og afmælisveislan einnig. Nes fékk góðar og afmælisgjafir í
tilefni dagsins og þökkum við veittan stuðning. Við í stjórn NES viljum bera
fram þakkir enn og aftur til aðstandenda sem aðstoðuðu okkur þennan dag. Stór stund
í starfi íþróttafélags. NES hefur lagt mikið
kapp á það að hafa virkt félagsstarf innan félagsins og lagt upp með að hafa
hittinga einu sinni í mánuði, fyrir utan
hefðbundnar æfingar. Á þessum hittingum hittast iðkendur, aðstandendur, stjórn
og þjálfarar og gera sér glaðan dag saman. Lögð var áhersla að að hafa mismunandi hittinga þetta starfsár og segja má með sanni að það hafi tekist. Við fórum m.a.
tvisvar sinnum í bíó, út að borða, héldum opið hús, héldum jólabingó og héldum
diskótek. Þessir hittingar heppnuðust alveg einstaklega vel, mikið hlegið
og haft gaman. Fjáraflanir eru NES nauðsynlegar
í starfi félagsins og eru stöðugt í þróun hvað er hentugast að taka inn hverju sinni og
selja. Fjáraflanir þetta starfsár voru
með öðru sniði en undanfarin ár. Fyrir jól vorum við annarsvegar að selja jólakort,
merkimiða, jólabók og kærleikstré og svo hinsvegar héldum við jólabingó. Það
var vel sótt, gaf vel af sér og fengum við fjölda allan af fyrirtækjum sem
styrktu félagið með vinningum á bingó-ið sem og sveitarfélagið Garður veitti
okkur fría aðstöðu. Við þökkum kærlega fyrir veittan stuðning. Eftir áramót fór
lítið fyrir hefðbundinni fjáröflun hjá iðkendum en þess í stað voru stjórnarmeðlimir
á útopnu að senda inn styrktarbeiðnir hingað og þangað. Sú leit skilaði sér og
sést það t.d. best á logo-auglýsingum sem verða á æfingabolum NES, sem eru rétt
ókomnir úr prentun frá HENSON. Það skal þó tekið fram að önnur fyrirtæki/bæjarstjórnir
hafa styrkt okkur á annan hátt sbr. Bláa Lónið, Sjálfsbjörg, Reykjanesbær,
Garður, Sandgerði, Grindavík og fleiri. Við þökkum kærlega fyrir veittan
stuðning. Það er ánægjulegt að segja
frá því að NES er loksins að ná takmarki sínu með "að galla alla upp" í
félaginu. Nýjir gallar og bolir frá HENSON
hafa verið hannaðir og eru gallarnir t.d. komnir í hús. Einhver smá seinkun varð á
bolunum. Einnig er í pöntun sérhannaður sundfatnaður í merki Nes og sundhetta
frá fyrirtækinu FINIS. Við látum vita á facebook um leið og þetta kemur í hús. Þess ber að geta að
Stjórn NES hefur lagt mikla áherslu að vera áberandi í samfélaginu og að það sé
virkt samband við iðkendur og aðstandendur hvort sem það í gegnum síma eða
email. Í vetur stofnuðum við t.d. nýtt email fyrir NES sem vonandi allir vita
hvað er (nes.stjorn@gmail.com). Einnig
hafa vonandi allir tekið eftir að við höfum verið mjög virk á netinu, bæði á facebook
og á bloggsíðunni. Við teljum að þetta hafi tekist með ágætum og stefnan er að
halda þessu áfram. Æfingargjöld NES eru
mikilvæg félaginu og þökkum við þeim sem hafa staðið í skilum varðandi þau en
minnum um leið á þá sem skulda að borga þau sem allra fyrst. Að lokum vil ég fyrir hönd stjórnar þakka ykkur iðkendum kærlega fyrir veturinn. Þið hafið verið ykkur sjálfum, aðstandendum ykkar, þjálfurum og félaginu öllu til mikins sóma. Staðið ykkur einstaklega vel, sýnt mikinn metnað og dug. Haldið áfram á þessari braut. Þið eruð frábær. Stjórn vill þakka þjálfurum NES sérstaklega fyrir öflugt og gott starf og mikinn metnað sem þíð hafið sýnt í störfum ykkar á þessu starfsári. Stjórn vill líka þakka ykkur líka fyrir einstaklega gott samstarf og hlakkar til að starfa áfram með ykkur á komandi starfsári. Ykkur aðstandendum viljum við einnig þakka gott samstarf og þann stuðning sem þið hafið veitt félaginu. Styrktaraðilar Nes og aðrir velunnarar þökkum við veittan stuðning. Með þessum orðum lýk ég máli mínu fyrir hönd stjórnar NES. Takk fyrir.
Skrifað af Stjórn NES 04.06.2012 23:28Íslandsmót ÍF í frjálsum íþróttum næstkomandi laugardag þann 9.júní´12Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í Frjálsum íþróttum verður haldið næstkomandi laugardag þann 9.júní 2012 á Laugardalsvelli. Upphitun hefst kl.11.00 og hefst mótið kl.11.30. Nánar um mótið má sjá á www.ifsport.is 04.06.2012 23:03Bikarmót ÍF í sundi næstkomandi laugardag 9.júní ´12Bikarmót Íþróttasambands fatlaðra í sundi verður haldið í Ásvallarlaug laugardaginn 9.júní 2012. Mótið verður haldið í 25 metra laug og hefst upphitun kl.13.00. Keppni hefst svo kl.14.00. Keppt verður í eftirfarandi greinum: 1.grein 200m skrið Karla 2.grein 200m skrið Kvenna Að móti loknu verður sundfólki og aðstandendum boðið uppá að setjast niður og borða saman í veislusalnum á 2.hæð í Ásvallarlaug. Boðið verður uppá pítsur, brauðstangir og gos á 1200kr. pr.mann. Þeir sem vilja vera með eru beðnir að senda staðfestingu og fjölda á foreldraráð Fjarðar, gott@mi.is
Flettingar í dag: 1427 Gestir í dag: 194 Flettingar í gær: 428 Gestir í gær: 78 Samtals flettingar: 212207 Samtals gestir: 29239 Tölur uppfærðar: 26.11.2024 12:22:52 |
Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum Nafn: Íþróttafélagið NESTölvupóstfang: nes.stjorn@gmail.comAfmælisdagur: 17 nóvember 1991Staðsetning: Suðurnes, ÍslandÖnnur vefsíða: https://www.facebook.com/ibrottafelagid.nes.1Um: Lottónúmer NES er; 234. Við þökkum fyrirfram fyrir veittan stuðningTenglar
Eldra efni
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is